Kristján Magnússon (verslunarstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 14:53 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 14:53 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kristján var verslunarstjóri, fæddur 1839 að Nýjabæ. Foreldrar Kristjáns voru Skaftfellingar.

Kristján var verslunarstjóri við Godthaabsverslun til ársins 1862. Hann var dugnaðarmaður og enginn átti meiri skipakost í Eyjum á þeim tíma.

Kristján lést árið 1865. Við andlát hans fluttist kona hans, sem var dönsk, aftur til Kaupmannahafnar með tvo syni þeirra hjóna. Annar þeirra, Christian að nafni, varð þekktur maður í Danmörku sem forstjóri margra vátryggingafélaga í Kaupmannahöfn.


Heimildir