Katrín Árnadóttir (Ásgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. mars 2013 kl. 14:35 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. mars 2013 kl. 14:35 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Katrín Árnadóttir''' húsfreyja í Ásgarði fæddist 12. október 1905 og lést 8. maí 1981. <br> Faðir hennar var Árni Filippusson í [[Ásgarður|Ásgarð...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Katrín Árnadóttir húsfreyja í Ásgarði fæddist 12. október 1905 og lést 8. maí 1981.
Faðir hennar var Árni Filippusson í Ásgarði, kennari, útgerðarmaður og gjaldkeri, f. 17. febrúar 1856, dáinn 6. janúar 1932, og kona (1898) hans Gíslína Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. apríl 1871, d. 18. júlí 1953.

Maður Katrínar var, (17. september 1926), Árni Árnason símritari, fræðimaður og bjargveiðimaður frá Grund, f. 19. mars 1901 að Vestri- Búastöðum, d. 13. október 1962.

Barn Katrínar og Árna var:
1. Hilda, f. 19. október 1926, d. 17. desember 2004, gift á Akureyri Herði prentara, f. 9. febrúar 1929, d. 9. september 2012, Svanbergssyni.
Uppeldisbörn Árna og Katrínar voru:
2. Þórarinn Guðmundsson radíóvirki, sonur Guðmundar bróður Katrínar, f. 25. apríl 1929.
3. Katrín Gunnarsdóttir fornleifafræðingur, dóttir Hildu, f. 1. janúar 1947.

Fóstursystkini Katrínar voru tvö systurbörn Gíslínu, móður Katrínar, börn Jóns Guðmundssonar á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka og Ingibjargar Gíslínu Jónsdóttur konu hans, (sjá Gíslínu):
1. Lúðvík Jónsson, síðar bakarameistari í Haga og síðar á Selfossi, f. 12. október 1904, d. 21. mars 1983.
2. Ágústína Jónsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 11. maí 1906, d 1. nóvember 1989.


Heimildir