Karl Sigurbjörnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 14:58 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 14:58 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Karl Sigurbjörnsson, 1973 til 1974. Fæddur 5. febrúar 1947 í Reykjavík. Foreldrar Sigurbjörn biskup Einarsson og kona hans Magnea Þorkelsdóttir. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1967 og cand. theol. frá Háskóla Íslands 1973. Var við nám í Haslev udvidede höjskole sumarið 1962, skiptinemi í Tacoma 1964 til 1965, starfsmaður alkirkjuráðsins í Uppsölum 1968. Settur annar sóknarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli 1973 og skipaður annar prestur í Hallgrímsprestakalli í Reykjavík 1975 og gegnir því embætti enn. Kona hans er Kristín Þórdís Guðjónsdóttir verkamanns í Reykjavík, fyrrum bónda í Móhúsum á Stokkeyri.