Karl Gauti Hjaltason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. janúar 2012 kl. 10:53 eftir Gauti (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. janúar 2012 kl. 10:53 eftir Gauti (spjall | framlög) (Smávegis viðbót)
Fara í flakk Fara í leit

Karl Gauti Hjaltason var skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum 27. maí 1998 og tók við embætti 1. júlí 1998. Karl Gauti fæddist í Reykjavík þann 31. maí árið 1959. Foreldrar hans eru Hjalti Karlsson fyrrum verktaki í Kópavogi og Kolbrún Steinþórsdóttir fyrrum sjúkraliði.

Karl Gauti lauk cand. juris frá Háskóla Íslands 1989. Hann starfaði um langt skeið innan íþróttahreyfingarinnar og hefur setið í Íþróttadómstól ÍSÍ frá 1996 sem nú heitir áfrýjunardómstóll ÍSÍ. Hann var stofnandi og formaður Karatefélagsins Þórshamars 1979-1985, formaður Karatesambands Íslands í þrettán ár frá 1985-1998. Þá sat hann í stjórn UMSK 1985-86 og í stjórn íþróttafélagsins Gerplu 1983-86. Hann hlaut gullmerki ÍSÍ 1998. Hann hefur verið í stjórn Taflfélags Vestmannaeyja frá 2003 og formaður þess frá 2007 og var ritari í stjórn Skáksambands Íslands frá 2006 -2007.

Karl Gauti var fulltrúi bæjarfógetans í Keflavík, Grindavík og Njarðvík og sýslum. í Gullbringusýslu 1989-1990 og starfaði um skeið hjá ríkisskattanefnd. Karl Gauti var settur sýslumaður á Hólmavík um skeið sumarið 1996. Hann var fulltrúi sýslum. í Árnessýslu og bæjarfógetans á Selfossi, síðar sýslumannsins á Selfossi 1990-1998 þar til hann var skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum árið 1998. Karl Gauti starfaði sem formaður yfirkjörstjórnar í Suðurlandskjördæmi frá 1998 síðan í hinu nýja Suðurkjördæmi frá 2003.

Kona hans er Sigurlaug Stefánsdóttir, B.Ed. frá K.H.Í. 2006, kennari við Barnaskólann í Vestmannaeyjum. Þau eiga þrjú börn, Alexander f. 1994, Kristinn f. 1997 d. sama ár og Kristófer f. 1997. Þau búa að Ásavegi 31.