„Jarþrúður P. Johnsen“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 8: Lína 8:


{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Þorsteinn Þ. Víglundsson. ''[[Blik]], ársrit Vestmannaeyja''. 1969.}}
* [[Þorsteinn Þ. Víglundsson]]. ''[[Blik]], ársrit Vestmannaeyja''. 1969.}}


[[Flokkur:Stubbur]]  
[[Flokkur:Stubbur]]  
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]

Útgáfa síðunnar 10. júlí 2006 kl. 17:02

Jarþrúður P. Johnsen fæddist 3. júní 1890 í Fnjóskadal, dóttir séra Péturs Jónssonar og Helgu Skúladóttur á Hálsi í Fnjóskadal. Jarþrúður var kona Sigfúsar Maríusar Johnsen.

Jarþrúður gekk í Kvennaskólann í Reykjavík og stundaði síðan tungumálanám. Á yngri árum þótti hún hafa fagra söngrödd og lærði hún meðal annars hjá frægum söngkennara í Kaupmannahöfn. Eitt sinn héldu þær saman tónleika í Vestmannaeyjum, Jarþrúður og Anna Pálsdóttir píanóleikari, kona Sigurðar Sigurðssonar lyfsala í Eyjum.

Jarþrúður var einnig hagmælt og gáfuð. Heimili þeirra hjóna bar vott um snyrtimennsku og reglusemi.

Sigfús og Jarþrúður eignuðust ekki börn saman en áður átti Sigfús einn son.


Heimildir