Jakob Magnússon (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. mars 2015 kl. 21:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. mars 2015 kl. 21:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jakob Magnússon''' frá Kvíhólma u. Eyjafjöllum, vinnumaður í Dölum, fæddist 1839 og hrapaði úr Stórhöfða 1. ágúst 1855.<br> Foreldrar han...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jakob Magnússon frá Kvíhólma u. Eyjafjöllum, vinnumaður í Dölum, fæddist 1839 og hrapaði úr Stórhöfða 1. ágúst 1855.
Foreldrar hans voru Magnús Sigmundsson vinnumaður, síðar á Oddsstöðum f. 1810, drukknaði 18. nóvember 1842 og barnsmóðir hans Helga Jónsdóttir vinnukona, síðar húsfreyja á Kvíhólma og í Ystabæliskoti, f. 1815, d. 21. september 1887.

Jakob var með móður sinni á Kvíhólma 1840 og 1845, niðursetningur í Ystabæli 1850.
Hann kom til Eyja frá Leirum u. Fjöllunum 1855, ráðinn vinnupiltur að Dölum.
Hann hrapaði til bana úr Stórhöfða 1. ágúst 1855.


Heimildir