„Jón Jónsson (Brautarholti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 6: Lína 6:
Jón og Guðríður hófu búskap í [[Svaðkoti]] hjá móður Guðríðar, en byggðu síðan nýtt [[Svaðkot]] á svipuðum stað og [[Suðurgarður]] stendur núna.  Þetta var lítið einlyft hús.
Jón og Guðríður hófu búskap í [[Svaðkoti]] hjá móður Guðríðar, en byggðu síðan nýtt [[Svaðkot]] á svipuðum stað og [[Suðurgarður]] stendur núna.  Þetta var lítið einlyft hús.


Jón og Guðríður fluttu til Canada um aldamótin og bjuggu í Selkirk. Þau fluttu aftur heim árið 1907 og byggðu [[Brautarholt]] við Landagötu 3b árið 1908.
Jón og Guðríður fluttu til Kanada um aldamótin og bjuggu í Selkirk. Þau fluttu aftur heim árið 1907 og byggðu [[Brautarholt]] við Landagötu 3b árið 1908.


Jón stundaði sjómennsku, þar af 13 ár á [[Gideon]], gerði út báta, vann við byggingu Fiskimjölsverksmiðjunnar og vann þar síðan til ársins 1933, en gerðist þá ráðsmaður á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja í fjölda ára.
Jón stundaði sjómennsku, þar af 13 ár á [[Gideon]], gerði út báta, vann við byggingu Fiskimjölsverksmiðjunnar og vann þar síðan til ársins 1933, en gerðist þá ráðsmaður á [[Sjúkrahús Vestmannaeyja|Sjúkrahúsi Vestmannaeyja]] í fjölda ára.
Jón var heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi Álseyinga. Hann hélt upp á áttræðisafmæli sitt í Álsey.  Veiðistaður einn í eynni er nefndur eftir honum, heitir hann Jónsnef.
Jón var heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi Álseyinga. Hann hélt upp á áttræðisafmæli sitt í Álsey.  Veiðistaður einn í eynni er nefndur eftir honum, heitir hann Jónsnef.



Útgáfa síðunnar 6. júlí 2006 kl. 11:59

Jón Jónsson í Brautarholti fæddist 15. júlí 1869 í Norðurbænum á Vilborgarstöðum, en fluttist með foreldrum sínum að Dölum árið 1880. Foreldrar hans voru hjónin Jón Jónsson hreppsjóri í Dölum og kona hans Jóhanna Gunnsteinsdóttir. Eina systur átti hann, Dómhildi, en hún flutti ung til Ameríku.

Eiginkona Jóns var Guðríður Bjarnadóttir í Svaðkoti, f. 1875. Þau eignuðust 5 börn, Bjarna f. 1896, dó ungur, Jónu Jóhönnu, f. 1899, dó í Canada , Bjarneyju Ragnheiði f. 1905 í Canada, Jónu Jóhönnu f. 1907, d. 2005 og Ólaf Gunnstein f. 1911, d. 1984..

Jón og Guðríður hófu búskap í Svaðkoti hjá móður Guðríðar, en byggðu síðan nýtt Svaðkot á svipuðum stað og Suðurgarður stendur núna. Þetta var lítið einlyft hús.

Jón og Guðríður fluttu til Kanada um aldamótin og bjuggu í Selkirk. Þau fluttu aftur heim árið 1907 og byggðu Brautarholt við Landagötu 3b árið 1908.

Jón stundaði sjómennsku, þar af 13 ár á Gideon, gerði út báta, vann við byggingu Fiskimjölsverksmiðjunnar og vann þar síðan til ársins 1933, en gerðist þá ráðsmaður á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja í fjölda ára. Jón var heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi Álseyinga. Hann hélt upp á áttræðisafmæli sitt í Álsey. Veiðistaður einn í eynni er nefndur eftir honum, heitir hann Jónsnef.

Jón lést 4. september 1964, 95 ára að aldri.