„Jón Guðmundsson (sýslumaður)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip Merki: Síðasta breyting handvirkt tekin til baka |
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 17. febrúar 2024 kl. 13:43
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Guðmundsson“
Jón Guðmundsson var sýslumaður Vestmannaeyja frá 1798 til 1801. Foreldrar hans voru séra Guðmundur Jónsson að Krossi í Landeyjum og Guðrún Halldórsdóttir frá Stað í Steingrímsfirði. Jón stundaði nám í Skálholtsskóla í þrjá vetur, fór svo utan og tók stúdentspróf frá Hróarskelduskóla. Jón lauk prófi í lögum frá háskólanum í Kaupmannahöfn árið 1798. Hann fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjasýslu sama ár og sat hana til ársins 1801. Hann fékk veitingu fyrir Vestur-Skaftafellssýslu árið 1801. Kona hans var Ragnhildur Guðmundsdóttir frá Fljótsdal. Þau bjuggu í Stakkagerði. Börn þeirra voru fjögur.
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason. Eyjar gegnum aldirnar. Reykjavík, 1982.