Jóhanna Sigríður Jónsdóttir (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. maí 2015 kl. 11:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. maí 2015 kl. 11:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jóhanna Sigríður Jónsdóttir''' húsfreyja frá Gjábakka fæddist 15. september 1876 og lést 16. apríl 1916. <br> Foreldrar hennar voru [[Jón Guðmundsson (G...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Sigríður Jónsdóttir húsfreyja frá Gjábakka fæddist 15. september 1876 og lést 16. apríl 1916.
Foreldrar hennar voru Jón Guðmundsson á Gjábakka, f. 31. júlí 1843, og kona hans Veigalín Eiríksdóttir húsfreyja, f. 28. nóvember 1843, d. 23. júní 1884.

Jóhanna Sigríður missti móður sína er hún var tæpra 8 ára. Hún var með föður sínum á Gjábakka til 1887, tökubarn hjá Kristínu Jónsdóttur og Ingvari Ólafssyni á Miðhúsum 1888-1891, með föður sínum á Gjábakka 1892-1894, vinnukona í Nöjsomhed 1895.
Hún fór til Austfjarða 1896, kom þaðan gift með Jóni Filippussyni 1898, eignaðist barnið Ólaf Vídalín 1899, var húsfreyja í Dalbæ 1901.
Hún fór til Vesturheims 1902 með Jóni og Ólafi Vídalín syni þeirra.

I. Maður hennar var Jón Filippusson, f. 14. september 1878, d. 23. júlí 1956.
Barn þeirra hér var
1. Ólafur Vídalín Jónsson, f. 26. október 1899, d. 17. nóvember 1974. Hann nefndi sig Philippson Vestra. Kona hans var Karla Marie Jensen.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.