„Jóhann Hlíðar“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (flokkur fólk)
Lína 8: Lína 8:
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
}}
}}
 
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Prestar]]
[[Flokkur:Prestar]]

Útgáfa síðunnar 19. janúar 2006 kl. 11:12

Séra Jóhann Hlíðar, sóknarprestur, var varaþingmaður af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi. Jóhann sat á Alþingi í apríl 1970. Hann var fæddur á Akureyri þann 25. ágúst 1918. Foreldrar hans eru Sigurður E. Hlíðar alþingismaður og Guðrún Luisa Hlíðar.

Jóhann varð stúdent á Akureyri 1947. Tók guðfræðipróf frá Háskóla Íslands 1946. Stundaði framhaldsnám í kennimannlegri og samstæðilegri guðfræði við Menighedsfakultetet í Osló 1946-1947. Hann kynnti sér unglingafræðslu og störf presta í Stokkhólmi veturinn 1953-1954. Jóhann kynnti sér starf MRA -hreyfingarinnar í Caux í Sviss 1949.

Hann var ráðinn til starfa hjá Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga frá 1. september 1947. Jóhann var kallaður til prédikunarstarfa á vegum þess og vígður prestsvígslu 18. janúar 1948 og gegndi því starfi til 1. október 1953. Síðar settur sóknarprestur í Hvanneyrarprestakalli í Siglufirði 15. júlí 1951 og til 15. september sama ár. Var settur aðstoðarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli 1954 og seinna meir sóknarprestur þar frá 1956 til 1972. Síðar sóknarprestur í Nesprestakalli í Reykjavík 1972-1975, en gegndi íslenska prestsembættinu í Kaupmannahöfn síðan. Starfaði sem kennari við Menntaskólann á Akureyri 1949-1952 og seinna meir kennari við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum 1954-1970 og Stýrimannaskólanum í Vestmannaeyjum frá 1967 til 1969.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.