„Jóhann Gunnar Ólafsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
mEkkert breytingarágrip
Lína 5: Lína 5:
Jóhann gaf út fjölda bóka og rita, þ.á.m. Nokkrir þættir úr sögu Vestmannaeyja I-II (1938), Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum I-II (1938-9), Aðalhöfundur Árbókar Ferðafélags íslands 1948 um Vestmannaeyjar, Kirkjurnar í Vestmannaeyjum, Árbók Hins ísl. fornleifafélags (1933-36) og fjölda annarra sögulegra rita, frumsamdra, þýddra og eftir aðra.  

Jóhann var félagsmaður í [[Taflfélagi Vestmannaeyja|Taflfélag Vestmannaeyja]] [[Taflfélag Vestmannaeyja]] og tefldi m.a. fyrir hönd félagsins 1929 og 1930. Mikið gaman hafði hann á íþróttum og stundaði þær af krafti. Hann tók þátt í fyrsta íþróttamótinu á [[Þjóðhátíð]] árið 1922. Þar kastaði hann lengst allra kringlunni, 28,75 m. Hann var meðstofnandi Knattspyrnufélagsins Týs 1921 og fyrsti formaður þess.
Jóhann var félagsmaður í [[Taflfélag Vestmannaeyja]] [[Taflfélag Vestmannaeyja]] og tefldi m.a. fyrir hönd félagsins 1929 og 1930. Mikið gaman hafði hann á íþróttum og stundaði þær af krafti. Hann tók þátt í fyrsta íþróttamótinu á [[Þjóðhátíð]] árið 1922. Þar kastaði hann lengst allra kringlunni, 28,75 m. Hann var meðstofnandi Knattspyrnufélagsins Týs 1921 og fyrsti formaður þess.

{{Heimildir|
{{Heimildir|

Útgáfa síðunnar 20. apríl 2007 kl. 15:53

Jóhann Gunnar Ólafsson fæddist 19. nóvember 1902 í Vík í Mýrdal, V-Skaftafellssýslu, d. 1. sept. 1979 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Ólafur Arinbjarnarson verslunarstjóri og Sigríður Eyþórsdóttir. Kona Jóhanns var Ragna Haraldsdóttir og giftust þau í Vestmannaeyjum sama ár og Jóhann tók við embætti bæjarstjóra hér. Þau áttu 5 syni.

Hann varð cand. juris frá Háskóla Íslands 1927. Jóhann var kosinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í desember 1928 og gegndi því embætti til 1938. Eftir tveggja ára starf við Útvegsbankann í Vestmannaeyjum fluttist hann á Ísafjörð þar sem hann gegndi embætti sýslumanns í 25 ár.

Jóhann gaf út fjölda bóka og rita, þ.á.m. Nokkrir þættir úr sögu Vestmannaeyja I-II (1938), Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum I-II (1938-9), Aðalhöfundur Árbókar Ferðafélags íslands 1948 um Vestmannaeyjar, Kirkjurnar í Vestmannaeyjum, Árbók Hins ísl. fornleifafélags (1933-36) og fjölda annarra sögulegra rita, frumsamdra, þýddra og eftir aðra.

Jóhann var félagsmaður í Taflfélag Vestmannaeyja Taflfélag Vestmannaeyja og tefldi m.a. fyrir hönd félagsins 1929 og 1930. Mikið gaman hafði hann á íþróttum og stundaði þær af krafti. Hann tók þátt í fyrsta íþróttamótinu á Þjóðhátíð árið 1922. Þar kastaði hann lengst allra kringlunni, 28,75 m. Hann var meðstofnandi Knattspyrnufélagsins Týs 1921 og fyrsti formaður þess.

Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.