Jóhann Ármann Kristjánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júlí 2006 kl. 10:57 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júlí 2006 kl. 10:57 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Ármann Kristjánsson fæddist 29. desember 1915 og lést 6. desember 2002. Árið 1948 kvæntist Jóhann Elínu Guðlaugsdóttur frá Sólbergi við Brekastíg. Þau eignuðust fjögur börn, Guðlaug, Rögnu, Guðnýju Kristínu og Jóhann Ellert.

Jóhann hóf sjómennsku ungur og stundaði hana til fjölda mörg ár. Eftir að hann fór í land réði hann sig sem matsvein hjá Fiskiðjunni og síðar starfaði hann hjá Rafveitu Vestmannaeyja þar til hann fór á eftirlaun árið 1990.

Jóhann var virkur félagi í Sjálfstæðisflokknum öll sín fullorðinsár og tók einnig þátt í starfi Starfsmannafélagi Vestmannaeyja þar sem hann var síðar gerður að heiðursfélaga.