Ingi Sigurðsson (knattspyrnumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júlí 2006 kl. 15:48 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júlí 2006 kl. 15:48 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ingi Sigurðsson er fæddur 18. desember 1968. Hann er kvæntur Fjólu Björk Jónsdóttur iðnrekstrarfræðingi.

Að loknum sveitastjórnarkosningum 2002 var Ingi ráðinn sem bæjarstjóri á vegum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Þegar það samstarf slitnaði rúmlega ári síðar var Inga sagt upp störfum.

Ingi spilaði knattspyrnu með ÍBV í fjöldamörg ár.

Ingi starfar nú sem útibússtjóri Glitnis í Vestmanneyjum.