Inga Hrönn Guðlaugsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Inga Hrönn Guðlaugsdóttir frá Ásavegi 25, húsfreyja fæddist þar 4. nóvember 1958.
Foreldrar hennar voru Guðlaugur Guðjónsson frá Oddsstöðum, trésmíðameistari, forstjóri, f. 2. júní 1919, d. 2. júní 2008, og kona hans Anna Pálína Sigurðardóttir frá Neskaupstað, húsfreyja, f. 30. ágúst 1920, d. 5. desember 2004.

Börn Önnu og Guðlaugs:
1. Guðjón, f. 4. desember 1940. Fyrrum kona hans Guðrún Margrét Guðjónsdóttir. Kona hans Helga Katrín Sveinbjörnsdóttir.
2. Sigríður, f. 4. maí 1945, gift Sigurgeiri Þór Sigurðssyni.
3. Guðrún, f. 1. febrúar 1953, gift (skildu) Henrý Henriksen.
4. Inga Hrönn, f. 4. nóvember 1958, gift Birki Agnarssyni.

Inga Hrönn var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Birkir giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Smáragötu 4.
Maður Ingu Hrannar er Birkir Agnarsson framkvæmdastjóri, f. 8. mars 1959.
Börn þeirra:
1. Anna Kristín Birkisdóttir, viðskiptafræðingur, f. 21. september 1979 í Eyjum. Maður hennar Hörður Þór Sigurðsson.
2. Silvía Björk Birkisdóttir, f. 3. nóvember 1987 í Rvk. Sambúðarmaður hennar Björn Kristjánsson.
3. Bylgja Dís Birkisdóttir, f. 19. júlí 1993 í Eyjum. Maður hennar Bragi Jónsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.