Hundraðmannahellir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 11:17 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 11:17 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hundraðmannahellir er hellir í Torfamýri, syðst í Herjólfsdal, stutt norður af Hamarsvegi, við 10 holu Golfvallarins. Inngangurinn snýr til suðvesturs.

Hellirinn er frekar langur og fremur lágur til lofts. Ekki er hægt að ganga inn um hann heldur þarf að skríða nokkurn spöl til þess að komast inn í aðalhvelfinguna innst í hellinum. Þar er holrýmið nokkuð mikið, og nokkrir ættu að komast þar inn í einu. Sagt er að í Tyrkjaráninu hafi um hundrað manns falið sig í hellinum — og þaðan er nafnið til komið — en ólíklegt er að svo margir komist þar fyrir - kannski nær tuttugu eða þrjátíu. Hellirinn er hár í innri hvelfingunni, og getur meðalmaður staðið næstum uppréttur í honum. Hinsvegar er það hið mesta ævintýri að kanna þennan helli eins og margir geta sagt til um.


Heimildir

  • Ferðabók F.Í. 1948 bls. 119-124