Hoffell

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. ágúst 2006 kl. 15:56 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. ágúst 2006 kl. 15:56 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hoffell

Húsið Hoffell stendur á Ásavegi 10 og var byggt á árunum 1911-12. Það var í eigu Jónínu Sigurðardóttur og fyrri manns hennar sem hét Bjarni Bjarnason. Hann lést í sjóslysi árið 1923. Seinni maður Jónínu hét Þórarinn Ólason og lést hann árið 1958. Þau Óli Sigurður Þórarinsson og Gyða Steingrímsdóttir keyptu húsið árið 1961.

Þórarinn Ólason yngri og Lára Skæringsdóttir keyptu húsið árið 1990 og seldu það núverandi eigendum árið 2003. Hoffell var sem sagt í eigu sömu fjölskyldunar frá upphafi til ársins 2003 eða rúm 90 ár. Árið 2006 búa í húsinu Páll Marvin Jónsson sjávarlíffræðingur og bæjarstjórnarmaður, kona hans Eva Káradóttir kennari og börn þeirra.