Hof

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. nóvember 2009 kl. 08:24 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. nóvember 2009 kl. 08:24 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hof

Húsið Hof var byggt árið 1906 af Magnúsi Jónssyni sýslumanni og stóð við Landagötu 25. Var þetta timburhús ofan á hlöðnum kjallaragrunni. Voru veggir kjallarans sérlega þykkir og var mikil steypa á milli steinanna. Yfirsmiður var Magnús Ísleifsson í London og var þetta fyrsta húsið sem Magnús sá um smíði á.

Frá upphafi var Hof aðsetur sýslumanns en eftir að Vestmannaeyjar fengu kaupstaðarréttindi 1918 var Hof aðsetur bæjarfógeta til ársins 1924, en þá var aðsetur bæjarfógeta flutt að Tindastóli.

Hof, Skálholt og Vestasti verkamannabústaðurinn við Urðaveg.

Eftir að aðsetur bæjarfógeta var flutt frá Hofi keypti Þorlákur Sverrisson húsið ásamt konu sinni Sigríði Jónsdóttur. Höfðu þau hjón búskap og voru með tún austan megin við Hof. Seinna voru á túninu byggðir Verkamannabústaðirnir og íbúðarhús á Austurhlíð reist. Bjó Þorlákur að Hofi til dánardægurs árið 1943 og bjó kona hans þar ásamt tveimur dætrum þeirra til ársins 1960, þegar Birgir R. Ólafsson keypti það.

Landagata 21, 23 og 25.
Hof

Þegar Karl Einarsson sýslumaður bjó á Hofi var sýsluskrifari hans hið merka skáld Magnús Stefánsson (Örn Arnarson), og bjó hann í norðurherbergi á Hofi. Á þeim tíma sem hann var í Eyjum orti hann mörg af sínum ágætustu kvæðum.

Hjónin Gísli Valur Einarsson og Björg Guðjónsdóttirog börn þeirra Guðjón Þór, Helga Dís og Gylfi Rafn bjuggu í húsinu þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973. Einnig bjuggu þá í húsinu Gylfi viðar Kristjánsson, Lárus K. Árnason, Pálína Gunnlaugsdóttir, Svanur Ólafsson og Jóhanna Bjarnh Ólafsdóttir


Húsið fór undir hraun í gosinu 1973.



Heimildir


Heimildir

  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.