Hljómskálinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 10:33 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 10:33 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Hljómskálinn við Hvítingaveg 10 var byggt árið 1930. Það var Lúðrasveit Vestmannaeyja sem réðst í þessa byggingu og þaðan er nafnið til komið. Var húsið ætlað bæði til æfinga sem og tónleikahalds. En þetta reyndist Lúðrasveitinni fjárhagslega ofviða og fáeinum árum síðar keypti Sveinbjörn Einarsson, smiður frá Þorlaugargerði vestra, húsið og breytti því í íbúðarhús en var með smíðaverkstæði í kjallaranum þar sem hann m.a. sagði ungum mönnum til í handavinnu. Árið 1944 keypti síðan Magnús Magnússon frá Lyngbergi húsið og þar bjuggu árið 2005 Sveinn Magnússon, sonur hans, fyrrum lögreglumaður og kennari og kona hans, Sigríður Steinsdóttir (Sissa) frá Múla. Í kjallaranum er enn þá smíðaverkstæði.

Hljómskálinn

Heimildir

  • Munnleg frásögn Sveins Magnússonar.