„Hlöðver Johnsen“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
mEkkert breytingarágrip
Lína 8: Lína 8:
Hann var landskunnur [[Fuglaveiðar|fuglafangari]] og kleif m.a. Eldey fjórum sinnum. Hann stundaði lundaveiði og eggjatöku frá unga aldri til dauðadags, aðallega í [[Bjarnarey]]. Hlöðver skrifaði bókina Bergið klifið, en það eru minningar hans frá æskuárum þar sem lýst er lífinu í byggðinni [[ofanbyggjarar|fyrir ofan hraun]] auk þess sem veiðimennsku í úteyjum eru þar gerð góð skil.
Hann var landskunnur [[Fuglaveiðar|fuglafangari]] og kleif m.a. Eldey fjórum sinnum. Hann stundaði lundaveiði og eggjatöku frá unga aldri til dauðadags, aðallega í [[Bjarnarey]]. Hlöðver skrifaði bókina Bergið klifið, en það eru minningar hans frá æskuárum þar sem lýst er lífinu í byggðinni [[ofanbyggjarar|fyrir ofan hraun]] auk þess sem veiðimennsku í úteyjum eru þar gerð góð skil.


Hlöðver var kvæntur [[Sigríður Haraldsdóttir|Sigríði Haraldsdóttur]] frá [[Garðshorn]]i og áttu þau fjögur börn. Árið 1952 byggðu þau sér húsið [[Saltaberg (hús)|Saltaberg]] og þótti arkítektúr þess á þeim tíma mjög sérstakur og þykir raunar enn.
Hlöðver var kvæntur [[Sigríður Haraldsdóttir|Sigríði Haraldsdóttur]] frá [[Garðshorn]]i og áttu þau fimm börn saman, en fyrir átti Sigríður eitt barn.
Börnin eru: Ágústa Guðmundsdóttir, Margrét, Sigríður, Anna Svala, Haraldur og Svava.  Árið 1952 byggðu þau sér húsið [[Saltaberg (hús)|Saltaberg]] og þótti arkítektúr þess á þeim tíma mjög sérstakur og þykir raunar enn.


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]

Útgáfa síðunnar 27. nóvember 2006 kl. 10:43

Hlöðver Johnsen

Fullu nafni hét hann Jón Hlöðver Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum 11. febrúar 1919 og lést 10. júlí 1997, 78 ára gamall. Hann var sonur hjónanna Árna J. Johnsen og Margrétar Mörtu Jónsdóttur frá Suðurgarði. Súlli, eins og Hlöðver var jafnan kallaður, ólst að miklu leyti upp hjá móðurafa sínum og ömmu í Suðurgarði, þeim Jóni Guðmundssyni og Ingibjörgu Jónsdóttur.

Frá Gottuleiðangri á Grænland 1929

Hann lauk prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík, iðnskóla og matsveinaskóla. Hann var sjómaður í nokkur ár og útgerðarmaður, gerði m.a. út hið þekkta skip Gottu VE sem áður hafði farið í frægan leiðangur til Grænlands að sækja sauðnaut. Hann starfaði við verslunarstörf um hríð og var bankastarfsmaður í 12 ár.

Hann starfaði með vísindamönnum við rannsóknir á nýja hrauninu á Heimaey og síðar við hraunhitaveituna.

Hann var landskunnur fuglafangari og kleif m.a. Eldey fjórum sinnum. Hann stundaði lundaveiði og eggjatöku frá unga aldri til dauðadags, aðallega í Bjarnarey. Hlöðver skrifaði bókina Bergið klifið, en það eru minningar hans frá æskuárum þar sem lýst er lífinu í byggðinni fyrir ofan hraun auk þess sem veiðimennsku í úteyjum eru þar gerð góð skil.

Hlöðver var kvæntur Sigríði Haraldsdóttur frá Garðshorni og áttu þau fimm börn saman, en fyrir átti Sigríður eitt barn. Börnin eru: Ágústa Guðmundsdóttir, Margrét, Sigríður, Anna Svala, Haraldur og Svava. Árið 1952 byggðu þau sér húsið Saltaberg og þótti arkítektúr þess á þeim tíma mjög sérstakur og þykir raunar enn.