Helgi Tómasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 09:47 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 09:47 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Helgi Tómasson er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum.

Helgi hóf nám í ballet þegar hann var 15 ára gamall í Kaupmannahöfn. Tveimur árum síðar fór hann til New York þar sem ferill hans sem atvinnudansara hófst, fyrst hjá Joffrey Ballet og síðar Harkness Ballet.

Í fyrstu alþjóðlegu balletkeppninni sem haldin var í Moskvu árið 1969 hafnaði Helgi í öðru sæti á eftir Mikhail Baryshnikov.

Fljótlega eftir þetta var Helgi ráðinn til New York City Ballet og dansaði þar við frábæran orðstír í hálfan annan áratug. Hann varð svo stjórnandi hjá San Francisco Ballet fyrir tuttugum árum og hefur lyft þar grettistaki.