Helgi Ólafsson (skákmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. mars 2013 kl. 23:49 eftir Gauti (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. mars 2013 kl. 23:49 eftir Gauti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Helgi Ólafsson


Helgi Ólafsson teflir í Höllinni.

Helgi Ólafsson er fæddur 15. ágúst 1956 í Vestmannaeyjum. Hann er einn sigursælasti skákmaður Íslands. Hann hefur orðið Íslandsmeistari í skák sex sinnum og tvisvar Vestmannaeyjameistari. Helgi varð alþjóðlegur meistari FIDE 1978 og alþjóðlegur stórmeistari 1985.

Helgi var skákmeistari Vestmannaeyja tvisvar, árin 1972-73. Keppnin 1973 varð söguleg þar sem skákir á skákþinginu það árið sem fóru í bið og voru ekki tefldar til enda fyrr en 20 árum seinna, þar sem um nóttina hófst Heimaeyjargosið 23. janúar 1973. Er félagi í Taflfélag Vestmannaeyja og hefur keppt fyrir félagið um árabil um efstu sætin á Íslandsmótinu í sveitakeppni. Helgi kemur oft til Eyja til þjálfunar á yngri skákmönnum félagsins og hefur oft haldið hér fjöltefli. Helgi fylgdi Íslandsmeisturum í skáksveit Barnaskóla Vestmannaeyja á Norðurlandamótið á Örsundsbro í Svíþjóð 2007, en þar lenti sveitin í 2 sæti.

Helgi hefur landað eftirtöldum titlum í skák:

  • Íslandsmeistari 1978, 1981, 1991, 1992, 1993 og 1996.
  • Skákmeistari Vestmannaeyja 1972 og 1973.
  • Atskákmeistari íslands fjórum sinnum.
  • Hraðskákmeistari íslands fimm sinnum.
  • Efstur á Skákþingi Norðurlanda 1985 og efstur í aukakeppni ásamt Simen Agdestein
  • Norðurlandameistari unglinga 1975.
  • Sigurvegari á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu 1984 og 1990.
  • Silfurverðlaun einstaklinga á Evrópumóti landsliða 2011.
  • Skákmeistari Reykjavíkur 1976 og 1977.
  • Skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur 1975.


Sigurvegari á fjölmörgum alþjóðlegum mótum í Noregi, Frakklandi, Kanada og St. Martin í karabíska hafinu. Helgi var útnefndur FIDE senior trainer 2009 sem er æðsti þjálfaratitill FIDE. Þá var Helgi kjörinn íþróttamaður ársins í Kópavogi 1980 og "Maður ársins" hjá DV ásamt íslenska ólympíuliðinu 1986.

Helgi hefur teflt á 15 Ólympíuskákmótum, oftar en nokkur annar íslendingur þar af langoftast á 1. borði. Hann komst hæst í kringum 30. sæti á heimlista FIDE og var reglulega á topp 50 í heiminum á níunda áratugnum. Hann tefldi á 3. borði eftir Ulf Anderson og Bent Larsen í úrvalsliði Norðurlanda gegn Bandaríkjunum árið 1986 og á 2. borði í úrvalsliði Norðurlanda árið 1990 á eftir Simen Agdestein í Stórveldaslag árið 1990.

Þá hefur Helgi látið sig ýmis réttlætismál varða og var í RJF–hópnum sem barðist fyrir frelsun Bobby Fischers úr japanskri dýflissu. Hópurinn hefur fengið sænsk verðlaun fyrir að standa upp í hárinu á bandarískum yfirvöldum. Er núverandi og fyrsti Íslandsmeistari skákmanna i golfi.

Bækur og fjölmiðlavinna:

Ritstörf og fjölmiðlun:

  • Skrifaði bókina Benóný ásamt Jóni Torfasyni og Braga Halldórssyni.
  • Þýddi og staðfærði bókina Skák og mát eftir Anatolí Karpov, prentuð hér á landi í nálega 30 þús. eint. en Hrókurinn dreifði henni til skólabarna í 3. bekk fyrir nokkrum árum.
  • Þýddi og staðfærði kennslubók FIDE: Skákkennsla.
  • Skrifaði bókina Bobby Fischer comes home sem kom út í Hollandi á árinu 2012.
  • Gerði 13 kennsluþætti í skák ásamt Jóni L. Árnasyni; sýndir hjá RÚV haustið 1991. Einnig unnu þeir Jón upp kennsluefni fyrir Stöð 2.
  • Skákskýringar í sjónvarpi hjá RÚV frá 1991 og einnig á Stöð 2 í áraraðir.
  • 1992 kom Hermann Gunnarsson að þessum útsendingum sem stundum rötuðu á Stöð 2, Sýn (m.a. skákeinvígi barna ) og á Skjá 1. Vann ásamt Hermanni að „þríleik“ hjá RÚV árin 1993 – 1995 og fengu Judit Polgar, Anatolí Karpov og Garrí Kasparov til að tefla hér á atskákmótum.
  • Var framkvæmdastjóri Reykjavik rapid sem fram fór á NASA mars 2004. Fékk til keppni menn á borð við Kasparov, Karpov, Magnús Carlsen, Lev Aronjan og fleiri heimsþekkta skákmenn. Beinar útsendinga voru á RÚV alla dagana keppninnar.