„Helga Kristmundsdóttir (Hólshúsi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Ormur Ormsson og Helga Kristmundsdóttir.jpg|350px|thumb|''Ormur Ormsson og Helga Kristmundsdóttir.]]
'''Helga Kristmundsdóttir''' húsfreyja frá [[Hólshús]]i fæddist 19. desember 1897 og lést 3. maí 1977.

'''Helga Kristmundsdóttir''' húsfreyja frá [[Hólshús]]i fæddist 19. desember 1897 og lést 3. maí 1977.

Foreldrar hennar voru  [[Kristmundur Árnason (Búastöðum)|Kristmundar Árnason]] sjómaður, f. 2. júlí 1872, d. 19. desember 1935,  og [[Þóra Einarsdóttir (Nýjabæ)|Þóru Einarsdóttur]] ekkja frá Ormskoti undir Eyjafjöllum, f. 1855, d. 6. mars 1898.

Foreldrar hennar voru  [[Kristmundur Árnason (Búastöðum)|Kristmundar Árnason]] sjómaður, f. 2. júlí 1872, d. 19. desember 1935,  og [[Þóra Einarsdóttir (Nýjabæ)|Þóru Einarsdóttur]] ekkja, frá Ormskoti undir Eyjafjöllum, f. 1855, d. 6. mars 1898.

Helga ólst upp hjá [[Ingvar Árnason (Hólshúsi)|Ingvari Árnasyni]] föðurbróður sínum og konu hans [[Gróa Þórðardóttir (Hólshúsi)|Gróu Þórðardóttur]] húsfreyju  í Hólshúsi.

Helga ólst upp hjá [[Ingvar Árnason (Hólshúsi)|Ingvari Árnasyni]] föðurbróður sínum og konu hans [[Gróa Þórðardóttir (Hólshúsi)|Gróu Þórðardóttur]] húsfreyju  í Hólshúsi.

Útgáfa síðunnar 17. apríl 2014 kl. 11:38

Ormur Ormsson og Helga Kristmundsdóttir.

Helga Kristmundsdóttir húsfreyja frá Hólshúsi fæddist 19. desember 1897 og lést 3. maí 1977.
Foreldrar hennar voru Kristmundar Árnason sjómaður, f. 2. júlí 1872, d. 19. desember 1935, og Þóru Einarsdóttur ekkja, frá Ormskoti undir Eyjafjöllum, f. 1855, d. 6. mars 1898.

Helga ólst upp hjá Ingvari Árnasyni föðurbróður sínum og konu hans Gróu Þórðardóttur húsfreyju í Hólshúsi.
Helga stundaði verkakvennastörf í Eyjum.
Hún giftist Ormi 1918 og fluttist með honum til Reykjavíkur á því ári.
Hún bjó í Reykjavík til ársins 1931, er þau gerðust bændur á Hofgörðum á Snæfellsnesi og 1936 fluttust þau að Laxárbakka þar og bjuggu þar til ársins 1946.
Þau fluttust í Borgarnes 1946, þar sem Ormur var rafvirkjameistari. Þau bjuggu þar síðan.

I. Maður Helgu, (1. júní 1918), var Ormur Ormsson rafvirkjameistari og bóndi, f. 3. mars 1891, d. 26. desember 1965.
Börn þeirra Orms voru:
1. Hrefna Ormsdóttir húsfreyja og saumakona í Reykjavík, f. 30. mars 1919, d. 22. apríl 2004, gift Þórði Guðjónssyni húsasmíðameistara.
2. Ormur Guðjón Ormsson rafvirkjameistari í Borgarnesi, síðar í Keflavík, f. 3. ágúst 1920, d. 17. janúar 2006, kvæntur Huldu Jóhannesdóttur húsfreyju, (skildu), síðar Sveinbjörgu Jónsdóttur húsfreyju.
3. Ingvar Georg Ormsson vélvirki í Keflavík, f. 11. ágúst 1922, kvæntur Ágústu Randrup húsfreyju.
4. Vilborg Ormsdóttir húsfreyja og talsímakona í Borgarnesi, f. 14. febrúar 1924, d. 13. október 2010, gift Guðmundi Sveinssyni bifreiðastjóra.
5. Sverrir Ormsson rafvirki í Reykjavík, f. 23. október 1925, d. 11. apríl 2014, kvæntur Döddu Sigríði Árnadóttur húsfreyju.
6. Þórir Valdimar Ormsson trésmíðameistari í Borgarnesi, f. 28. desember 1927, d. 13. júlí 2002, kvæntur Júlíönu Svandísi Hálfdánardóttur húsfreyju og iðnverkakonu.
7. Helgi Kristmundur Ormsson rafvirkjameistari í Borgarnesi, síðar á Gufuskálum á Snæfellsnesi, f. 15. ágúst 1929, kvæntur Huldu Sveinsdóttur húsfreyju.
8. Karl Jóhann Ormsson rafvirki í Borgarnesi, síðar í Reykjavík, f. 15. maí 1931, kvæntur Ástu Björgu Ólafsdóttur húsfreyju og leikskólastjóra.
9. Sveinn Ólafur Ormsson trésmiður í Keflavík, f. 23. júní 1933, kvæntur Önnu Pálu Sigurðardóttur húsfreyju.
10. Gróa Ormsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 13. mars 1936, gift Páli Steinari Bjarnasyni trésmíðameistara.
11. Guðrún Ormsdóttir húsfreyja í Borgarnesi, síðar á Hvolsvelli, f. 23. ágúst 1938, gift Gísla Kristjánssyni kennara.
12. Árni Einar Ormsson trésmiður í Borgarnesi, f. 27. maí 1940, kvæntur Halldóru Marinósdóttur húsfreyju.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
• Íslendingabók.is.
• Prestþjónustubækur.
• Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.