„Heimaklettur“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Heimaklettur sv spm.jpg|thumb|250px|Heimaklettur séður frá suð-vestri.]]
'''Heimaklettur''' er hæsta fjall Vestmannaeyja, en það stendur á [[Heimaey]] og er 263m á hæð yfir sjávarmáli. Kletturinn er [[jarðfræði|móbergsstapi]] sem varð til við gos undir jökli seint á síðustu ísöld. Hann stendur sæbrattur upp úr sjónum, en efst eru grasi vaxnar brekkur á bólstrabergstoppi þar sem að fé er haft á beit.
== Örnefni ==
'''Dufþekja''' norðan í Heimakletti er mikið [[fýll|fýlapláss]] og þar var áður mikil hvanna- og rótatekja. Hún er ákaflega flá og brött og var mönnum þar hrapgjarnt. Það var trú manna að 20 manns ættu að farast úr henni áður en yfir lyki eða jafnmargir og í Jökulsá á Sólheimasandi en þær áttu að „kallast á“ um manntapa. Fyrsta dauðsfallið í Dufþekju er sagt vera þegar að þræll Hjörleifs að nafni Dufþakur hrapaði þar niður á flótta undan Ingólfi Arnarsyni.
<div class="floatright" style="background: #e0e0e0; border: 1px solid #303030; padding: 7px;">
<div class="floatright" style="background: #e0e0e0; border: 1px solid #303030; padding: 7px;">
<big>Heimaklettur</big>
:''Heimaklettur, hátt þú rís''
:''Heimaklettur, hátt þú rís''
:''hrauns með gretta dranga.''
:''hrauns með gretta dranga.''
Lína 24: Lína 31:
- Sveinbjörn Á Benónýson
- Sveinbjörn Á Benónýson
</div>
</div>
'''Heimaklettur''' er hæsta fjall Vestmannaeyja, en það stendur á [[Heimaey]] og er 263m á hæð yfir sjávarmáli. Kletturinn er [[jarðfræði|móbergsstapi]] sem varð til við gos undir jökli seint á síðustu ísöld. Hann stendur sæbrattur upp úr sjónum, en efst eru grasi vaxnar brekkur á bólstrabergstoppi þar sem að fé er haft á beit.
'''Dufþekja''' norðan í Heimakletti er mikið [[fýll|fýlapláss]] og þar var áður mikil hvanna- og rótatekja. Hún er ákaflega flá og brött og var mönnum þar hrapgjarnt. Það var trú manna að 20 manns ættu að farast úr henni áður en yfir lyki eða jafnmargir og í Jökulsá á Sólheimasandi en þær áttu að „kallast á“ um manntapa. Fyrsta dauðsfallið í Dufþekju er sagt vera þegar að þræll Hjörleifs að nafni Dufþakur hrapaði þar niður á flótta undan Ingólfi Arnarsyni.

'''Hörgaeyri''' er sandbanki sunnan í Heimakletti sem stendur út frá '''Stóru-löngu'''. Þegar að Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason komu með [[Kirkjusaga|kristna trú]] til Íslands frá Noregi árið 1000 höfðu þeir með sér efnivið og fyrirmæli frá Ólafi konungi Tryggvasyni um að reisa skyldi kirkju á fyrsta stað sem að þeir „''skytu bryggjum á land''“, en í Kristnisögu kemur fram að þeir hafi haft viðkomu í Dyrhólaey á leið sinni. Kirkjan var reist á Hörgaeyri, þar sem blót og hörgar voru stundaðar áður. Kirkjan var kölluð [[Stafkirkjan]], og var tileinkuð heilögum Klementi, verndardýrlingi sæfara og sjósóknara.

Útgáfa síðunnar 3. júní 2005 kl. 09:33

Heimaklettur séður frá suð-vestri.

Heimaklettur er hæsta fjall Vestmannaeyja, en það stendur á Heimaey og er 263m á hæð yfir sjávarmáli. Kletturinn er móbergsstapi sem varð til við gos undir jökli seint á síðustu ísöld. Hann stendur sæbrattur upp úr sjónum, en efst eru grasi vaxnar brekkur á bólstrabergstoppi þar sem að fé er haft á beit.

Örnefni

Dufþekja norðan í Heimakletti er mikið fýlapláss og þar var áður mikil hvanna- og rótatekja. Hún er ákaflega flá og brött og var mönnum þar hrapgjarnt. Það var trú manna að 20 manns ættu að farast úr henni áður en yfir lyki eða jafnmargir og í Jökulsá á Sólheimasandi en þær áttu að „kallast á“ um manntapa. Fyrsta dauðsfallið í Dufþekju er sagt vera þegar að þræll Hjörleifs að nafni Dufþakur hrapaði þar niður á flótta undan Ingólfi Arnarsyni.

Heimaklettur

Heimaklettur, hátt þú rís
hrauns með gretta dranga.
Högg þér réttir hrannadís,
hörð og þétt á vanga.
Þú mátt brjóta storma stál
straumum móti gnafinn,
spyrna fótum Atlants-ál,
ölduróti kafinn.
Margra alda rún við rún
ristur gjaldamegin.
Upp í kaldan beitir brún,
bárufaldi þveginn.
Þegar hrína hret á kinn,
hreggið hvín á skalla.
Norðri krýnir konunginn
köldu líni mjalla

[...]

- Sveinbjörn Á Benónýson

Hörgaeyri er sandbanki sunnan í Heimakletti sem stendur út frá Stóru-löngu. Þegar að Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason komu með kristna trú til Íslands frá Noregi árið 1000 höfðu þeir með sér efnivið og fyrirmæli frá Ólafi konungi Tryggvasyni um að reisa skyldi kirkju á fyrsta stað sem að þeir „skytu bryggjum á land“, en í Kristnisögu kemur fram að þeir hafi haft viðkomu í Dyrhólaey á leið sinni. Kirkjan var reist á Hörgaeyri, þar sem blót og hörgar voru stundaðar áður. Kirkjan var kölluð Stafkirkjan, og var tileinkuð heilögum Klementi, verndardýrlingi sæfara og sjósóknara.

ok var lutað um hvárum megin vágsins standa skyldi, ok hlauzt fyrir norðan, þar váru áðr blót ok hörgar“.

Hákollar eru nyrst í Heimakletti, austan Dufþekju. Þar er mjög gjarnan stunduð lundaveiði.

Upplýsingin

Árið 2003, í tilefni af 30 ára goslokaafmælinu var byrjað að lýsa upp Heimaklett í skammdeginu með sterkum ljóskösturum. Friðbjörn Valtýsson stóð fyrir þessari uppljómun klettarins, en mörg fyrirtæki og margir einstaklingar komu að verkefninu. Í framhaldi af lýsingunni tók áhugahópur sig saman og fengu meira fjármagn og fleiri ljóskastara, og var þá byrjað að lýsa upp Neðri Kleifar og upp í Hettu.

Heimildir

  • Gamalt og Nýtt, I. bindi, Einar Sigurðsson ritstjóri; Prentsmiðjan Eyrún, Vestmannaeyjum 1949. ISBN 0-0003-055917
  • Fréttir, 30/04/2004, „Fleiri ljósum beint að Heimakletti í kvöld“. [1]
  • Landakirkja í Vestmannaeyjum, Helgi Bernódusson og Ágúst Karlsson. [2]
  • Eyjar í gegnum Aldirnar, Guðlaugur Gíslason; Örn og Örlygur, Reykjavík 1982.