Harpa Rútsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. janúar 2022 kl. 11:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. janúar 2022 kl. 11:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Kristrún ''Harpa'' Rútsdóttir''' frá Hafnarfirði, húsfreyja fæddist 2. júní 1952 og lést 14. desember 2021 á heimili sínu í Kópavogi. Foreldrar hennar voru Rútur Kristinn Hannesson hljóðfæraleikari, f. 16. ágúst 1920 á Stokkseyri, d. 18. ágúst 1984 og kona hans Ragnheiður Benediktsdóttir frá Hömrum í Haukadal, húsfreyja, f. 2. júlí 1924, d. 5. júlí 2013. Harpa var með foreldrum sínum í æsku. Hún nam um skeið í Flensborgarskóla í Ha...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristrún Harpa Rútsdóttir frá Hafnarfirði, húsfreyja fæddist 2. júní 1952 og lést 14. desember 2021 á heimili sínu í Kópavogi.

Foreldrar hennar voru Rútur Kristinn Hannesson hljóðfæraleikari, f. 16. ágúst 1920 á Stokkseyri, d. 18. ágúst 1984 og kona hans Ragnheiður Benediktsdóttir frá Hömrum í Haukadal, húsfreyja, f. 2. júlí 1924, d. 5. júlí 2013.

Harpa var með foreldrum sínum í æsku.

Hún nam um skeið í Flensborgarskóla í Hafnarfirði, lærði framreiðslu í Óðali, og lauk námi í Skrifstofu- og ritaraskólanum.

Harpa var þjónn, fór til Eyja 1974. Þar var hún læknaritari í 25 ár.

Þau Georg Þór giftu sig 1976, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 52.

Georg Þór lést 2001.

Kristrún Harpa flutti til Lands 2018, bjó í Kópavogi. Hún lést 2021.

I.              Maður Kristrúnar Hörpu, (6. ágúst 1976), var Georg Þór Kristjánsson, f. 25. mars 1950, d. 11. nóvember 2001.

Börn þeirra:

1.    Kristján Georgsson, f. 5. október 1975.

2.    Ragnheiður Rut Georgsdóttir, f. 23. júní 1977.

3.    Helga Björk Georgsdóttir, f. 20. október 1982.


Heimildir


  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 29. desember 2021. Minning.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.