„Gunnar Jónsson (Miðey)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Gunnar Jónsson.jpg|thumb|250px|Gunnar]]
[[Mynd:Gunnar Jónsson.jpg|thumb|250px|Gunnar]]
'''Gunnar Jónsson''' er fæddur í Vestmannaeyjum 18. janúar 1940. Hann er sonur hjónanna [[Rósa Guðmundsdóttir|Rósu Guðmundsdóttur]] frá [[Málmey]] og [[Jón Guðmundsson|Jóns Guðmundssonar]] frá [[Goðaland]]i sem var mikill aflamaður á sinni tíð.  
'''Gunnar Jónsson''' er fæddur í Vestmannaeyjum 18. janúar 1940. Hann er sonur hjónanna [[Rósa Guðmundsdóttir|Rósu Guðmundsdóttur]] frá [[Málmey]] og [[Jón Guðmundsson (formaður)|Jóns Guðmundssonar]] frá [[Goðaland]]i sem var mikill aflamaður á sinni tíð.  


Gunnar er kvæntur [[Selma Jóhannsdóttir|Selmu Jóhannsdóttur]]. Börn þeirra eru Eysteinn, Jón Atli og Árni. Gunnar og Selma búa á [[Illugagata|Illugagötu]] 53.
Gunnar er kvæntur [[Selma Jóhannsdóttir|Selmu Jóhannsdóttur]]. Börn þeirra eru Eysteinn, Jón Atli og Árni. Gunnar og Selma búa á [[Illugagata|Illugagötu]] 53.

Útgáfa síðunnar 27. júlí 2007 kl. 13:23

Gunnar

Gunnar Jónsson er fæddur í Vestmannaeyjum 18. janúar 1940. Hann er sonur hjónanna Rósu Guðmundsdóttur frá Málmey og Jóns Guðmundssonar frá Goðalandi sem var mikill aflamaður á sinni tíð.

Gunnar er kvæntur Selmu Jóhannsdóttur. Börn þeirra eru Eysteinn, Jón Atli og Árni. Gunnar og Selma búa á Illugagötu 53.

Gunnar byrjaði til sjós 1958 með föður sínum á Ver og lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1961. Gunnar hóf formennsku á Ver á humarveiðum árið 1963. Á þessum árum var hann á haustsíldveiðum með Kristni Pálssyni á Berg. Hann var á gamla Berg þegar báturinn fórst út af Snæfellsnesi haustið 1962 Gunnar var stýrimaður á nýjum Bergi 1963. Árið 1965 réðst hann á Ísleif IV með Guðmari Tómassyni heitnum og Gísla Jónassyni. Ísleifur IV var með mesta aflaverðmæti Vestmannaeyjabáta það ár. Gunnar varð skipstjóri á Ísleifi IV 1966 og tók við Ísleifi VE 63 árið 1967. Árið 1975 keypti hann Ísleifsútgerðina ásamt fleirum og var skipstjóri á nýjum Ísleifi allt til ársins 2004 þegar þeir seldu Vinnslustöðinni reksturinn.

Gunnar var aflakóngur Vestmannaeyja árin 1971 og 1973.