Gunnar Heiðar Þorvaldsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 12:19 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 12:19 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Gunnar Heiðar er fæddur 1. apríl 1982. Hann lauk grunnskólaprófi frá Hamarsskóla Vestmannaeyja 1998 og stúdentsprófi frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum árið 2002.

Gunnar Heiðar sýndi strax ótrúlega hæfileika á knattspyrnuvellinum og hefur leikið með öllum landsliðum Íslands í knattspyrnu. Hann lék með ÍBV í öllum yngri flokkum sem og meistaraflokki félagsins. Hann var valinn efnilegasti leikmaður efstu deildar árið 2002 og hann var markakóngur í efstu deild árið 2004.

Árið 2004 var Gunnar Heiðar seldur til sænska úrvalsdeildarfélagsins Halmstad þar sem hann sló heldur betur í gegn á sínu fyrsta ári og varð meðal annars markakóngur sænsku deildarinnar. Önnur lið í Evrópu fylgdust grannt með Gunnari og á vormánuðum 2006 gerði hann samning við stórlið Hannover í Þýskalandi.