Guðrún Guðmundsdóttir (Steinsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. mars 2014 kl. 20:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. mars 2014 kl. 20:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Guðmundsdóttir''' húsfreyja á Steinsstöðum fæddist 27. október 1794 og lést 7. júlí 1848.<br> Foreldrar hennar voru Guðmundur Björnsson bón...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja á Steinsstöðum fæddist 27. október 1794 og lést 7. júlí 1848.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Björnsson bóndi í Syðri-Fíflholtshjáleigu í V-Landeyjum, síðar í A-Landeyjum, síðast í Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu (nú Bólstaður) þar, f. 1767 á Melum í Melasveit í Borgarfirði, d. 23. desember 1822, og barnsmóðir hans Þuríður Árnadóttir vinnukona á Skúmsstöðum í V-Landeyjum, f. 1770, d. 25. ágúst 1821.

Þuríður Árnadóttir móðir Guðrúnar var einnig móðir Guðbjargar Daníelsdóttur húsfreyju á Vilborgarstöðum, f. 28. febrúar 1801, d. 27. desember 1888. Faðir hennar og barnsfaðir Þuríðar var Daníel Bjarnason, síðar tómthúsmaður í Saurbæ, f. 1777, d. 22. apríl 1845.

Guðrún var 7 ára með föður sínum og konu hans í Syðri-Fíflholtshjáleigu 1801.
Hún var vinnukona í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum 1816.
Sigurður var vinnumaður á Vesturhúsum, er þau giftust. Þau voru komin að Steinsstöðum 1825 og bjuggu þar síðan. Guðrún lést 1848.

Maður Guðrúnar, (5. september 1824), var Sigurður Vigfússon bóndi á Steinsstöðum, f. 31. maí 1791, d. 15. apríl 1857.
Barn þeirra hér:
1. Málfríður Sigurðardóttir, f. 12. ágúst 1824 á Vesturhúsum, d. 19. ágúst 1824 úr „Barnaveiki“, líklega ginklofi.
2. Hallgrímur Sigurðsson, f. 8. ágúst 1828, d. 11. ágúst 1828, (dánarorsök ekki skráð).


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.