Guðrún Guðlaugsdóttir (húsfreyja)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Guðlaugsdóttir frá Ásavegi 25, húsfreyja fæddist 1. febrúar 1953.
Foreldrar hennar voru Guðlaugur Guðjónsson frá Oddsstöðum, trésmíðameistari, forstjóri, f. 2. júní 1919, d. 2. júní 2008, og kona hans Anna Pálína Sigurðardóttir frá Neskaupstað, húsfreyja, f. 30. ágúst 1920, d. 5. desember 2004.

Börn Önnu og Guðlaugs:
1. Guðjón, f. 4. desember 1940. Fyrrum kona hans Guðrún Margrét Guðjónsdóttir. Kona hans Helga Katrín Sveinbjörnsdóttir.
2. Sigríður, f. 4. maí 1945, gift Sigurgeiri Þór Sigurðssyni.
3. Guðrún, f. 1. febrúar 1953, gift (skildu) Henrý Henriksen.
4. Inga Hrönn, f. 4. nóvember 1958, gift Birki Agnarssyni.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Henrý giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu við Maíubakka 18 í Rvk. Þau skildu.

I. Maður Guðrúnar, skildu, er Henrý Henriksen sjómaður, f. 12. september 1952.
Börn þeirra:
1. Guðlaugur Henrýsson, f. 10. mars 1976.
2. Stefán Henrýsson, f. 3. júní 1979.
3. Árdís Henrýsdóttir, f. 1. nóvember 1987.
4. Anna Lilja Henrýsdóttir, f. 4. mars 1989.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.