Guðrún Þorsteinsdóttir (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. mars 2014 kl. 21:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. mars 2014 kl. 21:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Þorsteinsdóttir''' húsfreyja á Steinsstöðum fæddist 1760, líklega látin fyrir mt. 1816.<br> Móðurbróðir hennar var [[Þorsteinn Helgason (D...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja á Steinsstöðum fæddist 1760, líklega látin fyrir mt. 1816.

Móðurbróðir hennar var Þorsteinn Helgason í Dölum, en hann var svaramaður hennar við giftingu 1787.

Guðrún var í Stakkagerði við giftingu 1787. Hún var húsfreyja á Steinsstöðum 1794 og ekkja á Gjábakka 1798.
Hún bjó með síðari manni sínum í Kastala 1801.

Guðrún var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (11. febrúar 1787), var Símon Sigvaldason bóndi á Steinsstöðum, f. 1763, d. fyrir 1798.
Börn þeirra:
1. Árni Símonarson, f. 10. júlí 1788, d. 17. júlí 1788 úr ginklofa.
2. Helga Símonardóttir, f. 30. mars 1791, d. 9. apríl 1791 úr ginklofa.
3. Ingveldur Símonardóttir, f. 11. júní 1792 á Steinsstöðum, d. 20. júní 1792 úr ginklofa.
4. Sigvaldi Símonarson, f. 11. janúar 1794, d. 19. janúar úr ginklofa.

II. Síðari maður Guðrúnar, (trúlofun í desember 1798) var Oddur Bjarnason tómthúsmaður í Kastala, f. 1746, líklega látinn fyrir mt. 1816.
Barn þeirra:
5. Helgi Oddsson, f. 9. ágúst 1798, d. 19. ágúst úr ginklofa.
6. Sesselja Oddsdóttir, f. 27. maí 1803, d. 4. júní 1803 úr ginklofa.


Heimildir