„Guðmundur Hreiðarsson (vinnumaður)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Guðmundur Hreiðarsson''' vinnumaður fæddist 1746 og drukknaði 16. febrúar 1793.<br> Faðir hans var Hreiðar Hreiðarsson bóndi á Kirk...)
 
m (Verndaði „Guðmundur Hreiðarsson (vinnumaður)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 19. janúar 2015 kl. 16:40

Guðmundur Hreiðarsson vinnumaður fæddist 1746 og drukknaði 16. febrúar 1793.
Faðir hans var Hreiðar Hreiðarsson bóndi á Kirkjubæ, f. 1721, d. 23. mars 1802.

Guðmundur var skipverji á áraskipi, sem fórst 16. febrúar 1793.
Úr Djáknaannálum við árið 1793: „10 manna skiptapi í Vestmannaeyjum, en 6 náðust lífs.“
Þeir, sem drukknuðu voru, (samkvæmt prestþjónustubók):
1. Jón Jónsson eldri, bóndi, f. 1733.
2. Árni Hákonarson bóndi, f. 1741.
3. Guðmundur Hreiðarsson vinnumaður, f. 1746.
4. Jón Jónsson úr Landeyjum, 23 ára, f. 1770.
5. Hálfdan Steingrímsson frá Miðmörk, 48 ára, f. 1745
6. Ögmundur Björnsson, 42 ára, f. 1751.
7. Tómas Eiríksson frá Selkoti u. Eyjafjöllum, 34 ára, f. 1759.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Annálar 1400-1800 (Annales Islandici Posteriorum Saeculorum), bók VI., Djáknaannálar. Hið íslezka bókmenntafélag 1987.
  • Prestþjónustubækur.