Guðlaugur Þorsteinsson (Laugalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júlí 2006 kl. 10:39 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júlí 2006 kl. 10:39 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaugur Þorsteinsson, Laugalandi, fæddist 1889. Árið 1914 kom Guðlaugur til Eyja til að fara á sjó. Formennsku byrjaði hann 1921 á Litlu Unni, síðar með Skúla Fógeta og svo Svan.

Jafnhliða stundaði Guðlaugur trésmíðar. Var hann eftirsóttur og var af mörgum talinn mjög hæfileikaríkur trésmiður.

Guðlaugur fluttist til Reykjavíkur árið 1945 og stundaði þar trésmíði á meðan heilsa hans leyfði.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 2 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.