Guðjón Hafliðason (Skaftafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:26 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:26 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Hafliðason fæddist 8. júlí 1889 að Fjósum í Mýrdal. Guðjón fór til Vestmannaeyja árið 1911 og gerðist háseti á Íslending hjá Friðriki Jónssyni og var með honum til ársins 1914. Þá byrjar Guðjón formennsku á Mýrdæling I og var með þann bát í fimmtán vertíðir. Eftir það kaupir hann Mýrdæling II og varr með hann til ársins 1936. Eftir það hætti hann formennsku.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.