Goslokahátíðin

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júní 2006 kl. 10:04 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júní 2006 kl. 10:04 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Goslokahátíðin í Skvísusundi.

Goslokahátíðin er haldin hátíðleg fyrstu helgina í júlí. Þá er goslokanna á Heimaey minnst með ýmsum hætti, svo sem harmonikkuleik og öðru skralli í krónum í Skvísusundi.


Þessi hátíð er minni í sniðum en þjóðhátíðin, en mun nánari og fjölskylduvænni. Gamlir Eyjamenn snúa aftur frá meginlandinu til þess að endurnýja gömul kynni, og viðstöðulausri dagskrá er haldið uppi víða um bæinn með málverkasýningum, leikrænum tilburðum og öðrum listrænum gjörningum.