„Garðar Sigurðsson alþingismaður“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(13 millibreytingar ekki sýndar frá 5 notendum)
Lína 1: Lína 1:
Garðar Sigurðsson Kennari. Alþingismaður kosinn af lista Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi 1971 og síðan. Fæddur í Reykjavík 20. nóvember 1933. Foreldrar Jóhann Sigurður (Fæddur 17. október 1900) Hjálmarsson bónda að Fremri-Bakka í Langadal Hafliðasonar og fyrri kona hans Klara (fædd 1. október 1906) Tryggvadóttir kennarar og bónda á Valshamri í Geirdal, síðar á Kirkjubóli í skutulsfirði Pálssonar. Ólst upp með móður sinni og síðari manni hennar Hallgrími skipstjóra Júlíussyni og fluttist með þeim til Vestmannaeyja 1941. K. 1. (7. júní 1955) Kristrún Hólmfríður (fædd 11. maí 1934). Þau skildu. K. 2. (27. október 1962) Bergþóra (fædd 10. maí 1943) Óskarsdóttir vélamanns í Neskaupstað Sigurfinnssonar og konu hans Þóru Guðnýjar Þórðardóttir.- Stúdent 1953 í reykjavík. Lagði stund á verkfræði við Háskóla Íslands 1953-1955. Kennari við Gagnfræðiskólan í Neskaupsstað 1957-1961 og jafnframt við Iðnskólan þar 1958-1961. Kennari við Gagnfræðiskólan í Vestmannaeyjum 1961-1963 og 1963-1973. Settur Skólastjóri 1969-1970. Stýrimannapróf 1962 í reykjavík (utan skóla) og öðru hvoru stýrimaður á fiskiskipum stærri og smærri upp frá því. Kosinn í stjórn Viðlagasjóðs 1973. Í flugráði síðan 1972. Skipaður í Fiskveiðilaganefnd 1975.
[[Mynd:Garðar sigurðsson.jpg|thumb|200px|Garðar Sigurðsson, alþingismaður.]]
[[Mynd:KG-mannamyndir 16665.jpg|thumb|200px|Garðar.]]


[[Flokkur:Fólk]]
'''Garðar Sigurðsson''' var fæddur í Reykjavík 20. nóvember árið 1933. Hann lést 19. mars 2004. Foreldrar Garðars voru Jóhann Sigurður Hjálmarsson (f. 17. okt. 1900, d. 29. júlí 1981) bifreiðasmiður og [[Klara Tryggvadóttir (Faxastíg)|Klara Tryggvadóttir]],  (f. 1. okt. 1906).
 
Fyrri kona Garðars var [[Kristrún Hólmfríður Jónsdóttir]] (f. 11. maí 1934) húsmóðir. Þau skildu. Síðari kona Garðars var [[Bergþóra Óskarsdóttir]] (f. 10. maí 1943) húsmóðir. Börn Garðars og Kristrúnar eru Bjarney Kolbrún (1955), Tryggvi (1958). Dætur Garðars og Bergþóru eru Sigríður (1962), Gerður Klara (1969), Guðný Ósk (1976), Edda (1979).
 
Garðar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann lagði stund á verkfræði við Háskóla Íslands 1953— 1955. Garðar lauk stýrimannaprófi í Reykjavík (utan skóla) árið 1962.
 
Garðar var kennari við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað á árunum 1957—1960 og jafnframt við Iðnskólann þar 1958—1960. Hann var kennari við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum á árunum 1961—1962 og 1963—1973, settur skólastjóri 1969—1970. Garðar stundaði sjómennsku með námi og kennslu, að aðalstarfi 1955—1957, stýrimaður á fiskiskipum á sumrum frá 1962. Hann var starfsmaður Veiðieftirlits sjávarútvegsráðuneytisins á árunum 1987— 1990. Garðar var starfsmaður Landsbanka Íslands síðan 1990.
 
Garðar var bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum frá 1966 til 1978. Hann sat í flugráði á árunum 1972—1980. Garðar sat í stjórn Viðlagasjóðs 1973—1975 og í bankaráði Útvegsbanka Íslands 1981—1987. Hann sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1974, 1975, 1981 og 1982. Garðar sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1972 og 1979—1983. Hann var fulltrúi á þingi Evrópuráðsins 1983—1987.
 
Garðar var alþingismaður í Suðurlandskjördæmi á árunum 1971-1987 fyrir Alþýðubandalagið. Hann var 2. varaforseti neðri deildar Alþingis frá 1979 til 1983.
 
{{Heimildir|
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
}}
 
[[Flokkur:Bæjarfulltrúar]]
[[Flokkur:Kennarar]]
[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 21. öld]]

Núverandi breyting frá og með 1. mars 2024 kl. 20:25

Garðar Sigurðsson, alþingismaður.
Garðar.

Garðar Sigurðsson var fæddur í Reykjavík 20. nóvember árið 1933. Hann lést 19. mars 2004. Foreldrar Garðars voru Jóhann Sigurður Hjálmarsson (f. 17. okt. 1900, d. 29. júlí 1981) bifreiðasmiður og Klara Tryggvadóttir, (f. 1. okt. 1906).

Fyrri kona Garðars var Kristrún Hólmfríður Jónsdóttir (f. 11. maí 1934) húsmóðir. Þau skildu. Síðari kona Garðars var Bergþóra Óskarsdóttir (f. 10. maí 1943) húsmóðir. Börn Garðars og Kristrúnar eru Bjarney Kolbrún (1955), Tryggvi (1958). Dætur Garðars og Bergþóru eru Sigríður (1962), Gerður Klara (1969), Guðný Ósk (1976), Edda (1979).

Garðar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann lagði stund á verkfræði við Háskóla Íslands 1953— 1955. Garðar lauk stýrimannaprófi í Reykjavík (utan skóla) árið 1962.

Garðar var kennari við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað á árunum 1957—1960 og jafnframt við Iðnskólann þar 1958—1960. Hann var kennari við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum á árunum 1961—1962 og 1963—1973, settur skólastjóri 1969—1970. Garðar stundaði sjómennsku með námi og kennslu, að aðalstarfi 1955—1957, stýrimaður á fiskiskipum á sumrum frá 1962. Hann var starfsmaður Veiðieftirlits sjávarútvegsráðuneytisins á árunum 1987— 1990. Garðar var starfsmaður Landsbanka Íslands síðan 1990.

Garðar var bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum frá 1966 til 1978. Hann sat í flugráði á árunum 1972—1980. Garðar sat í stjórn Viðlagasjóðs 1973—1975 og í bankaráði Útvegsbanka Íslands 1981—1987. Hann sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1974, 1975, 1981 og 1982. Garðar sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1972 og 1979—1983. Hann var fulltrúi á þingi Evrópuráðsins 1983—1987.

Garðar var alþingismaður í Suðurlandskjördæmi á árunum 1971-1987 fyrir Alþýðubandalagið. Hann var 2. varaforseti neðri deildar Alþingis frá 1979 til 1983.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.