Gísli J. Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 11:36 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 11:36 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Jóhannsson Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum þann 10. mars 1881. Foreldrar hans voru Jóhann Jörgen Johnsen kaupmaður og útvegsbóndi og Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen frá Hofi í Öræfum. Fyrri eiginkona Gísla var Ásdís Gísladóttir frá Hól og eignuðust þau þrjú börn. Ásdís átti við vanheilsu að stríða mestan hluta ævi sinnar og lést 1945. Síðari kona hans var frú Anna Ólafsdóttir yfirhjúkrunarkona á Vífilsstöðum. Gísli lést 6. september 1965 og var jarðaður við hlið fyrri konu sinnar, Ásdísar, í Gamla kirkjugarðinum í Reykjavík.

Gísli hóf ungur að aldri verslunarrekstur, aðeins 17 ára gamall. Með verslun sinni og útgerðarekstri náði hann að minnka umsvif Brydesverzlunar og á aðeins 10 árum að bæla niður þá dönsku einokun, sem hafði verið í margar mannsaldir. Einnig voru honum falin ýmis ábyrgðarstörf, svo sem skipaafgreiðsla og póstafgreiðsla.

Gísli átti einnig sinn sess í útgerðarsögu Vestmannaeyja. Hann lét smíða og flytja til Eyja fyrsta vélknúna fiskibátinn árið 1904 og árið 1928 lét hann smíða skipið Heimaey með loftskeytatækjum og var Heimaey fyrst allra vélbáta, á Íslandi, með þannig tækjum. Árið 1956 gáfu hann og síðari kona hans Slysavarnafélagi Íslands björgunarbát með fullkomnum útbúnaði. Einnig var Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum til húsa í Breiðabliki, sem hann reisti og var heimili hans meðan hann bjó í Eyjum.

Hann var einn helsti hvatamaður að því að byggja Sjúkrahús Vestmannaeyja, sem nú er Ráðhús bæjarins, og lagði öðrum meira fé til þeirrar byggingar.

Gísli var eindreginn sjálfstæðismaður. Hann langaði alltaf að gerast þingmaður Vestmannaeyja á Alþingi, en heimilisástæður leyfðu það ekki.

Gísli var sæmdur mörgum heiðursorðum í gegnum árin og var hann heiðursfélagi í Félagi íslenzkra stórkaupmanna.


Heimildir

  • Sigfús M. Johnsen: Yfir fold og flæði. Reykjavík, 1972.