Friðrik Svipmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:38 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:38 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Svipmundsson Löndum var fæddur að Loftsölum í Mýrdal 15. apríl 1871 og lést 3. júlí 1935. Hann kom til Vestmannaeyja 1893 og reri með Gísla Lárussyni á Friði. Um aldamótin 1900 gerðist hann formaður og var fljótt aflasæll. Hann var með vertíðarskipið Ísafold lengst af, þar til hann vélvæddist.

Árið 1906 kaupir hann Friðþjóf og varr formaður á honum til 1912. Þá keypti hann Örn og varr á honum til 1920. Eftir það varr hann formaður á Friðþjófi, Atlantis og Hjálpara til 1930. Friðrik var með eindæmum veðurglöggur og las vel í veðrið. Kom það oft fyrir að hann fór út í vonskuveðri og það batnaði, eða að hann kom snemma inn og veðrið versnaði.

Friðrik var mörg sumur formaður á Seyðisfirði og var jafnan aflahæstur þar.

Friðrik var aflakóngur þrisvar sinnum, árin 1907, 1909 og 1911.



Heimildir

  • Jón Sigurðsson. Aflakóngar Vestmannaeyja 1906-1929. Sjómannadagsblaðið 1961. 10. árg.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.