Friðrik Gíslason (Hlíðarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 16:28 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 16:28 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Gíslason var fæddur 11. maí 1870 í Hlíðarhúsi í Vestmannaeyjum. Hann var sonur Gísla bónda og verzlunarmanns Stefánssonar og konu hans Soffíu Lisbeth Andersdóttir frá Stakkagerði. Móðir hennar var Ásdís jónsdóttir. Friðrik stundaði sjóróðra, en varð annars lærður ljósmyndari. Kona hans var Anna Thomsen. Friðrik var fimur, snarpur og fylginn á sér og glímumaður ágætur. Hann kenndi um skeið glímu hjá Glímu- og sundfélagi Vestmannaeyja, sem stofnað var 7. nóvember 1894 með 16 félagsmönnum.



Heimildir

Bliki, 23. árg 1962, grein um sögu barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum eftir Þorstein Víglundsson.