Finnbogi Finnbogason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 13:29 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 13:29 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Finnbogi í Vallartúni.

Finnbogi Finnbogason, Vallartúni, fæddist að Norðurgarði í Vestmannaeyjum þann 11. maí 1891 og lést 2. apríl 1979. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson og Rósa Eyjólfsdóttir.

Finnbogi byrjaði sjómennsku ungur á Neptúnusi I og var hjá honum margar vertíðir. Formennsku byrjar Finnbogi árið 1915 á Stefni en síðar var hann með Láru, Ásdísi og Þór til ársloka 1923. Eftir það var hann formaður fyrir Ólaf Auðunsson útgerðarmann með hina ýmsu báta fram til 1940.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.