Finnbogi Finnbogason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:17 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:17 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Finnbogi Finnbogason, Vallartúni, fæddist að Norðurgarði í Vestmannaeyjum þann 11. maí 1891. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson og Rósa Eyjólfsdóttir. Finnbogi byrjaði sjómennsku ungur á Neptúnusi I og var hjá honum margar vertíðir. Formennsku byrjar Finnbogi árið 1915 á Stefni en síðar var hann með Láru, Ásdísi og Þór til ársloka 1923. Eftir það var hann formaður fyrir Ólaf Auðunsson útgerðarmann með hina ýmsu báta fram til 1940.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.