Elín Helga Björnsdóttir (Nýborg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. mars 2013 kl. 21:11 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. mars 2013 kl. 21:11 eftir Víglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Elín Helga Björnsdóttir húsfreyja í Nýborg fæddist 19. maí 1888 að Tjarnarlandi á Héraði og lést 7. ágúst 1963.
Faðir hennar var Björn bóndi í Miðbæ í Norðfirði, f. 18. ágúst 1849, d. 8. febrúar 1915, Jónsson bónda í Fannardal og Stuðlum þar, f. 1809, Björnssonar bónda víða á Austurlandi, Loðmundarfirði, Seyðisfirði, Mjóafirði (Grund þar 1816), Norðfirði og Borgarfirði, f. um 1783, d. 1872, Skúlasonar Sigfússonar og Svanhildar Sveinsdóttur; (frá þeim er Skúlaætt á Austurlandi).
Móðir Jóns í Fannardal og kona Björns Skúlasonar var Guðrún húsfreyja og yfirsetukona, f. 1782 á Litla-Steinsvaði í Hróarstungu, Jónsdóttir bónda á Bóndastöðum í Hjaltastaðaþinghá Magnússonar og konu Jóns á Bóndastöðum, Þuríðar húsfreyju Sveinsdóttur.
Móðir Björns í Miðbæ og kona Jóns í Fannardal var Ingibjörg húsfreyja, f. 1811, Illugadóttir „hins halta“ Jónssonar. Illugi var frá Ærlækjarseli í Axarfirði, var bóndi í Rima í Mjóafirði eystra 1812-1813, í Fjarðarkoti þar 1813-1818 og í Miðbæ í Norðfirði, f. um 1788, d. um 1871, Jónsson. Kona Illuga halta Jónssonar var Ingveldar húsfreyja, f. 1774, d. 20. janúar 1852, Hermannsdóttir frá Firði Jónssonar „pamfíls“; (Pamfílsætt á Austurlandi).

Móðir Elínar Helgu í Nýborg var Helga húsfreyja í Miðbæ, f. 27. október 1848 í Skógargerði í Fellum, d. 24. júní 1931, Hildibrandsdóttir bónda í Skógargerði, f. 1825, d. 1879, Hildibrandssonar bónda á Hofi í Fellum, Einarssonar, og seinni konu Hildibrands á Hofi, Guðrúnar húsfreyju, f. 1791, Einarsdóttur.
Móðir Helgu í Miðbæ og kona Hildibrands í Skógargerði var Jóhanna húsfreyja, f. 1822, Jónsdóttir bónda á Geirastöðum í Hróarstungu, „harðvítugur maður“ (ÆAu.), f. 1793 á Giljum á Jökuldal, Sigfússonar, og konu (1816) Jóns á Geirastöðum, Ingibjargar húsfreyju, f. um 1790 á Sandbrekku í Hjaltastaðaþinghá, Jónsdóttur á Bóndastöðum Magnússonar og konu Jóns, Þuríðar húsfreyju Sveinsdóttur, (sjá ofar Guðrúnu yfirsetukonu Jónsdóttur).

Elín Helga fluttist til Eyja frá Norðfirði 1910. Það ár búa þau Bergmundur í Brautarholti. Á mt. 1920 eru þau búandi hjón í Sjávargötu með fjórum börnum sínum. Lengst bjuggu þau í Nýborg.
Elín Helga fæddi 8 börn og ól upp tvö fósturbörn.
Maður hennar var Bergmundur Arnbjörnsson sjómaður og bræðslumaður, fæddur 17. október 1884, dáinn 21. nóvember 1952.

Börn Bergmundar og Elínar:
1. Laufey, f. 1. apríl 1911, d. 21. júní 1996.
2. Hildur, dó í frumbernsku, jarðsett 13. júlí 1913.
3. Helga, f. 17. júlí 1913, d. 26. apríl 1952.
4. Björn, f. 26. september 1914, d. 26. mars 1981.
5. Elísabet, f. 21. mars 1916, d. 10. júlí 1981.
6. Aðalbjörg, f. 27. desember 1919, d. 8. september 2003.
7. Guðbjörg, f. 15. nóvember 1922.
8. Ása, f. 2. maí 1926, d. 28. nóvember 2004.
Fósturbörn þeirra Bergmundar:
9. Birna Berg Bernódusdóttir, f. 8. september 1938.
10. Bergmundur Elli Sigurðsson, f. 15. apríl 1948.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.
  • Mjófirðingasögur. Vilhjálmur Hjálmarsson. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1987-1990.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.
  • Bergmundur Elli Sigurðsson.