Elías Gunnlaugsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. ágúst 2006 kl. 20:54 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. ágúst 2006 kl. 20:54 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Elías Gunnlaugsson.

Elías Gunnlaugsson fæddist 22. febrúar 1922. Faðir hans var Gunnlaugur Sigurðsson frá Gjábakka. Bræður Elíasar voru Aðalsteinn og Arnoddur. Elías bjó á Boðaslóð 17 en býr nú á Brimhólabraut 5. Eitt af börnum hans er Viðar, knattspyrnumaður og barnabarn Elíasar er knattspyrnukonan Margrét Lára Viðarsdóttir.

Elías var formaður, m.a. á bátunum Veigu og Tjaldi.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Elías:

Gunnlaugs er grérinn kunni
gramurinn Elías framur,
niðji þeirra sá þriðji,
þekkan ég meina rekkinn.
Skjaldmögur trúr er Tjaldar
tíðum í storma hríðum.
Fína formennsku sýna
fleyjastjórarnir Eyja.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.