Eiríkur Jónsson (Skýlinu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 11:17 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 11:17 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Eiríkur Jónsson, Hásteinsveg, fæddist á Reyðarfirði 1894.

Árið 1918 fer hann til Vestmannaeyja þar sem hann byrjar að stunda sjóinn. Formennsku byrjar Eiríkur með Óskar II fyrir Gísla Magnússon og er með þann bát eina vertíð. Síðan er hann formaður á Nirði.

Eftir að Eiríkur hætti á sjónum var hann forstöðumaður Verkamannaskýlisins í Vestmannaeyjum í fleiri ár.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 6-7 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.