Einar Ormsson (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. nóvember 2014 kl. 13:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. nóvember 2014 kl. 13:33 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Ormsson á Gjábakka, áður bóndi í Litla-Gerði og Litla-Moshvoli í Hvolhreppi, fæddist 1764 á Minni-Moshvoli þar og lést 3. janúar 1851 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Ormur Jónsson bóndi á Litla-Moshvoli, f. 1710, d. 9. apríl 1786, og kona hans Geirlaug Einarsdóttir húsfreyja, f. 1716, d. 3. janúar 1808.

Einar var til heimilis hjá Jóni yngri syni sínum á Gjábakka 1850, 89 ára ekkill.
I. Kona Einars var Ásdís Þorgilsdóttir frá Ártúnum á Rangárvöllum, f. 1753, d. 1828.
Barn þeirra hér:
1. Jón Einarsson eldri, bóndi á Gjábakka, f. 1789, d. 21. mars 1838.

II. Barnsmóðir Einars var Þjóðlaug Jónsdóttir, f. 1760. Hún var húsfreyja í Litla-Gerði í Hvolhreppi 1801, kona Ólafs Þórarinssonar bónda.
Barn þeirra var
2. Jón Einarsson yngri, Abel, bóndi á Gjábakka, f. 1792 d. 11. apríl 1861.

III. Barnsmóðir Einars var Kristín Markúsdóttir vinnukona, þá á Gjábakka, f. 1777.
Barnið var
3. Guðrún Einarsdóttir, f. 29. september 1803, d. 6. október 1803 úr ginklofa.


Heimildir