Einar Þorsteinsson (hárskeri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júlí 2006 kl. 09:53 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júlí 2006 kl. 09:53 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Þorsteinsson fæddist 19. ágúst 1921 og lést 14. apríl 1978. Til Eyja kom hann árið 1945 og átti hann heimili í Eyjum til 1973. Einar var kvæntur Henný Sigurjónsdóttir en hún var systurdóttir Friðfinns frá Oddgeirshólum. Eignuðust þau tvö börn.

Eyjamenn þekktu hann flestir undir nafninu Einar rakari. Einar rak rakarastofu í Kaupangi, húsi sem hann keypti og bjó í fyrstu árin. Síðar bjó hann að Fífilgötu 3 og Fjólugötu 13 þar sem hann bjó fram að gosi. Einar tók virkan þátt í félagslífi í bænum. Hann tók mikinn þátt í starfi Leikfélags Vestmannaeyja og einnig var hann mikill áhugamaður um golf.