„Edinborgarsteinn“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 8: Lína 8:
}}
}}


[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús sem fóru undir hraun]]
[[Flokkur:Formannabraut]]
[[Flokkur:Formannabraut]]
[[Flokkur:Strandvegur]]
[[Flokkur:Strandvegur]]
{{Byggðin undir hrauninu}}

Útgáfa síðunnar 6. júlí 2007 kl. 08:50

Edinborgarsteinn var kró með gafl út að Formannasundi og hlið að Strandvegi. Króin var byggð á árunum 1912-1920 og var steinsteypt. Flestar krær voru aðeins járnklæddir timburkofar og því ánægjuleg nýmæli verið þar á ferð. Kemur nafnið steinn einmitt frá því að króin var steinsteypt. Edinborgarsteinn stóð á króarstæðum Ofanleitis.

Seinna var byggt nýtt hús á sama stað og stóð þar fram að eldgosinu 1973. Það hús var stórt, tvílyft steinhús. Það hús var kallað Steinninn og var lengi í eigu Ármótsfeðga, Jóns, Þórarins og Markúsar. Seinna var það í eigu bræðranna í Háagarði og var það notað undir veiðarfærageymslu fyrir útgerðina af Báru. Síðast var Edinborgarsteinn viðgerðarverkstæði fyrir fyrirtæki Einars Sigurðssonar.



Heimildir

  • Karl Guðmundsson. Ég man þá tíð... Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1975.