„Breiðibakki“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Smálafæring)
Ekkert breytingarágrip
Lína 2: Lína 2:


[[Þjóðhátíðin|Þjóðhátíð Vestmannaeyja]] var haldin á Breiðabakka tvö ár eftir gos, eða þar til vikur hafði verið hreinsaður úr [[Herjólfsdalur|Herjólfsdal]].
[[Þjóðhátíðin|Þjóðhátíð Vestmannaeyja]] var haldin á Breiðabakka tvö ár eftir gos, eða þar til vikur hafði verið hreinsaður úr [[Herjólfsdalur|Herjólfsdal]].
[[Flokkur:Hús]]

Útgáfa síðunnar 13. júní 2006 kl. 15:46

Bærinn Breiðibakki stóð utan byggðar, sunnarlega á Heimaey, rétt norðan við Klaufina. Breiðibakki var svonefnt nýræktarland en Páll Oddgeirsson, kaupmaður og útgerðarmaður ræktaði upp jörðina og fékk ábúð fyrir henni á fjórða áratug síðustu aldar. Stærð jarðarinnar var 7,18 hektarar. Búskapur var stundaður á Breiðabakka fram yfir 1960 en síðasti ábúandi þar var Trausti Eyjólfsson, síðar ráðsmaður á Bændaskólanum Hvanneyri. Hin síðari ár hafa tómstundabændur haft aðstöðu á Breiðabakka með sauðfé og hesta.

Þjóðhátíð Vestmannaeyja var haldin á Breiðabakka tvö ár eftir gos, eða þar til vikur hafði verið hreinsaður úr Herjólfsdal.