Blik 1969/Færeyiski háfurinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. desember 2009 kl. 22:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. desember 2009 kl. 22:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Færeyski háfurinn

Færeyskur háfur.

Háfur hefur verið notaður til lundaveiða í Vestmannaeyjum síðan N. N. Bryde kaupmaður festi kaup á fyrsta háfnum í Færeyjum árið 1875 handa Árna hreppstjóra og hónda í Stakkagerði. Mjög bráðlega eftir það notuðu Vestmannaeyingar háfinn einvörðungu við lundaveiðarnar.

Enginn veit með vissu, hversu lengi Færeyingar hafa notað háf til fuglaveiða. Ef til vill er hann þar jafngamall búsetu Færeyja. Það vita menn með vissu, að hann var algengt veiðitæki fyrir þrem öldum þar í eyjunum.

Venjulegt færeyskt háfsskaft er 3,76 metra langt (6 álnir) úr furu. Háfsspíkurnar eru 1,25—1,88 metra langar og mjókka fram. Stundum var lásinn gjörður úr horni, stundum úr járni.