Blik 1936, 3. tbl/Smælki

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. september 2009 kl. 18:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. september 2009 kl. 18:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Blik 1936, 3. tbl

EKKI ERU ALLT SELIR, SEM SÝNAST.

Áður fyrr var svo háttað um allan reka í Vestmannaeyjum, að sá, sem fyrstur fann, hlaut happið. Var því mikið kapp um rekagöngur. Venjulega var farið í þær fyrir dögun, svo aðrir yrðu ekki fyrri á rekann. Ofanbyggjarar gengu á reka í Klaufinni, Víkinni og Brimurð.
Einhverju sinni fór bóndi nokkur af einhverjum bænum fyrir ofan Hraun fyrir dag á reka suður eftir, eins og venja var. Hann kom ekki heim aftur um daginn og var þá farið að leita hans. Fannst hann meðvitundarlítill og máttlaus, liggjandi fyrir ofan Klaufarskálina. Dó hann skömmu síðar, og fékk ekki málið fyrir andlátið, nema hvað menn þóttust heyra, að hann segði, þegar reynt var að spyrja hann þess, hvernig hann hefði orðið svo á sig kominn; „Það eru ekki allt selir, sem sýnast.“

______________________________________________________________________

Maður spurði bónda til vegar yfir fjallgarð til næsta bæjar fyrir handan fjallið. „Þú átt,“ sagði bóndi, „að beygja til hægri handar, þegar yfir fjallið kemur og muntu þá brátt sjá bæinn.“ Maðurinn hugsaði sig um andartak og sagði síðan: „Ó, til vinstri á mér, af því ég er örvhentur. “