Bjarni Bjarnason (Breiðholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júní 2012 kl. 09:03 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júní 2012 kl. 09:03 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Bjarni Bjarnason


Bjarni dýralæknir.

Bjarni Bjarnason fæddist 12. nóvember 1903 í Efri-Hömrum í Holtum og lést 9. apríl 1993. Sem unglingur var hann um skeið á skútu frá Hafnarfirði.

Árið 1930 kvæntist Bjarni Sigurbjörgu Einarsdóttur frá Búðarhóli í A-Landeyjum. Þau hófu búskap í Eyjum á kreppuárunum en tókst búskapurinn vel í upphafi og dafnaði. Bjuggu þau í Breiðholti við Vestmannabraut og jafnan kennd við húsið og talað um „Breiðholtshjónin“.

Ýmis störf vann Bjarni en þekktastur er hann af því að vera dýralæknir. Hann var m.a. sýsluskrifari, sjómaður, verkamaður og verslunarmaður. Hann var á meðal stofnenda Verkalýðsfélagsins og í stjórn þess nokkur ár. Hann var í sáttanefnd Vestmannaeyjabæjar í þrjátíu ár og var það vegna þess að gleymdist að kjósa í nefndina.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. „Bjarni Bjarnason minningargrein“. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1994. Vestmannaeyjum: Prentsmiðjan Eyrún, 1994.