„Björn Kalman“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(lömunarveikin)
(Manntafl)
Lína 34: Lína 34:
Björn flutti til Vestmannaeyja 1930 og vann þar við ýmis störf, m.a. sem kokkur á fiskibátum. Hann bjó að [[Tunga|Heimagötu 4, eða Tungu]] samkvæmt íbúaskrá 1934, en á þessum árum voru þar leigð herbergi til prívatmanna. Því húsi var breytt 1966-67 í gistihús undir nafninu [[Hótel Berg|Hótel Berg]].  Hann var félagi í [[Taflfélag Vestmannaeyja|Taflfélagi Vestmannaeyja]] og tefldi eitthvað, m.a. í sveitakeppni.  Hann fluttist að nýju til Reykjavíkur 1940 þar sem hann átti heima síðan.
Björn flutti til Vestmannaeyja 1930 og vann þar við ýmis störf, m.a. sem kokkur á fiskibátum. Hann bjó að [[Tunga|Heimagötu 4, eða Tungu]] samkvæmt íbúaskrá 1934, en á þessum árum voru þar leigð herbergi til prívatmanna. Því húsi var breytt 1966-67 í gistihús undir nafninu [[Hótel Berg|Hótel Berg]].  Hann var félagi í [[Taflfélag Vestmannaeyja|Taflfélagi Vestmannaeyja]] og tefldi eitthvað, m.a. í sveitakeppni.  Hann fluttist að nýju til Reykjavíkur 1940 þar sem hann átti heima síðan.


Sú tilgáta hefur oft verið nefnd að Björn hafi verið fyrirmyndin að '''Dr. B.''' í hinni þekktu sögu '''Stefans Zweig, Manntafl'''. Meðal annarra slær Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður fram þessari hugmynd í ævisögu sinni, sem út kom rétt fyrir andlát hans, 1962. Stefan Zweig fór, skv. frásögn Jóns Ólafssonar í ferðalag um Ameríku fyrir fyrri heimstyrjöld og dvaldi m.a. Boston (Harvard).
Sú tilgáta hefur oft verið nefnd að Björn hafi verið fyrirmyndin að '''Dr. B.''' í hinni þekktu sögu '''Stefans Zweig, Manntafl'''. Við útgáfu ævisögu Vilhjálms Stefánssonar landkönnuðar 1962, sem út kom eftir andlát Vilhjálms, vaknaði sú hugmynd, því samanburður á frásögn Vilhjálms við frásögn í bók Zweigs, Manntafl er sláandi líkt að mörgu leyti. Ævisögu Stefans Zweigs gefur líka þessari hugmynd byr undir vængi því Zweig mun hafa verið á ferð um Ameríku fyrir fyrri heimsstyrjöld og dvaldi m.a. í Boston (Harvard) ekki mörgum árum á eftir Birni.





Útgáfa síðunnar 9. desember 2013 kl. 00:50

Björn

Björn Pálsson Kalman var fæddur 25. júní 1883 á Hallfreðarstöðum í Hróarstungu, N-Múlasýslu, dáinn 12. janúar 1956 í Reykjavík.

Björn var sonur Páls Ólafssonar skálds og alþingismanns og seinni konu hans Ragnhildar Bjarnadóttur, Skúlasonar skálds og vinar Páls. Páll var áður kvæntur Þórunni Pálsdóttur, sem lagði grunn að fjárhag hans, en hann var 16 árum yngri, hún lést 1880. Páll faðir Björns var orðinn 56 ára er hann átti Björn, en hann hafði átt fjóra aðra syni, sem höfðu dáið á barnsaldri. Þá átti Björn systir, Bergljót, sem bjó í Kaupmannahöfn. Um ástríki Páls á konu sinni og einkasyni orti hann :

Þó ég ætti þúsund börn,
með þúsund afbragðs konum,
mest ég elska mundi Björn,
og móðurina´að honum.


Björn fluttist til Reykjavíkur um aldamótin og stundaði nám við Latínuskólann sem nú er Menntaskólinn í Reykjavík. Þaðan varð hann stúdent 1904 með I einkunn. Meðan á náminu stóð kenndi Ólafur Rósinkranz íþróttir við skólann, en hann var áhugasamur um knattspyrnu og tókst að vekja áhuga margra ungra drengja á þessari íþrótt. Björn var sérlega áhugasamur og lagði sig fram um að þeir félagar tækju sem allra mestum framförum í leiknum. Hann útvegaði sér eintak af enskum knattspyrnureglum, þýddi þær smám saman á íslensku og las upp úr þeim á æfingum, þannig náðu menn áður en langt um leið valdi á reglunum og gátu leikið löglega.

Áður en hann hélt utan sumarið 1904 var staddur í Reykjavík Vilhjálmur Stefánsson, landkönnuður og um sama leiti kom Napier, þá skákmeistari Englands, í heimsókn til Íslands. Napier tefldi við Björn sem þá var einn sterkasti skákmaður hér á landi og tókst Birni að sigra meistarann.

Björn sigldi síðan til Danmerkur til frekara náms og nam málfræði við Hafnarháskóla 1904-05, en fór haustið 1905 með Vilhjálmi Stefánssyni landkönnuði til Boston að ráði Vilhjálms til að setjast í Harvard háskóla og halda þar áfram námi í rafmagnsverkfræði. En þeir flutningar áttu aðallega að vera til að styrkja með því skáklið skólans. Fóru þeir Vilhjálmur saman á skipi frá Allan félaginu frá Glasgow til Montreal. Björn var sjóveikur nær alla leiðina, en á skipinu var skákmeistari Kanada James Mavor, prófessor við háskólann í Toronto, sem tefldi mikið við ónefndan ástralskan skákmann á leiðinni. Vilhjálmur tefldi líka við þá en lofaði þeim harðari keppinaut sem var Björn. Er siglt var inn um Belle Isle sund lægði sjóinn og Björn komst á fætur. Hann vann hverja skákina á fætur annarri og tefldi loks við þá báða blindskák og vann báðar.

Er í Harvard var komið voru skákmenn skólans því mótfallnir að svona ungur og nýkominn nemandi yrði tekinn framyfir hina eldri. Þetta var Birni mikið áfall og hvarf hann frá Harvard í skyndingu eftir þetta og fór til Winnipeg og vann þar að ýmsum störfum, en fluttist til Íslands að nýju í árslok 1908 og stundaði laganám við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan cand. juris 1912 og varð Hæstaréttarlögmaður 1922.

Björn og dætur.

Er Björn var í vesturheimi tefldi hann mikið við landa sinn, Magnús Smith og stóð honum nokkuð jafnfætis, en það jafngilti því að vera einn af sterkustu skákmönnum í Kanada, því Magnús hafði orðið Kanadameistari í öll þau skipti sem hann tefldi á meistaramótunum þar árin 1899, 1903 og 1906. Á þessum tíma átti Björn oft erfitt með svefn og gekk illa að útiloka sig frá því að hugsa um skák.

Þegar Björn var í Winnipeg 1906 fór hann með kunningja sínum að fylgjast með fjöltefli Frank Marshall, sem var bandarískur skákmeistari. Einn skákmaður mætti ekki til leiks og þar sem vitað var að Björn gat teflt var hann dreginn að auðu borðinu. Eftir nokkra leiki virtist Marshall forviða og kvartar yfir því að menn hefðu átt að aðvara hann gagnvart þessum manni og sagði að hann hefði átt að vera á fyrsta borði. Marshall tapaði þessari einu skák og vildi tefla aftur við Björn, en hann neitaði að tefla og reyndar aldrei framar, a.m.k. í Winnipeg. Skák sú er hann tefldi við Marshall virðist vera sú eina sem hann tefldi vestanhafs, sem varðveist hefur. Hún birtist í Lasker Chess Magasine.

Árið 1907 kom heimsmeistarinn í skák, Dr. Emanuel Lasker til Kanada og birtist m.a. frétt í Heimskringlu í júní 1907 um komu hans til bæjarins. Lasker hafði svo mikið álit á Magnúsi Smith að hann fékk hann til að gerast taflfélaga sinn og bauð honum ritstjórastarf við eitt af skáktímaritum sínum og þekktist Magnús boð heimsmeistarans og fór til New York.

Björn tók sér ættarnafnið Kalman á þessum tíma og gerðist meðritstjóri við Lögberg í eitt og hálft ár en fer svo að nýju til Íslands. Einhvern tíma eftir heimkomuna fluttist Björn til Seyðisfjarðar með fjölskyldu sína og þar var hann er ættarnafnið Kalman var samþykkt 1916. Þar virtist hann hafa búið um tíma. Hann hætti svo til alveg að tefla skák þar sem þær lögðust þungt á hann og hann gat ekki hætt að hugsa um skákirnar. Hann er nefndur í grein í Vísi 27. maí 1925 með þessum orðum : " ... enn eru til hér á landi ýmsir góðir skákmenn, en þó munu nú sumir hinna slyngustu hafa lagt þá íþrótt niður að mestu. Má þar nefna meðal annarra : þá Björn Pálsson Kalman og Pétur Zóphóníasson ... og mundu hafa talist hlutgengir hvar sem væri á skákþingum erlendis ... ".

Björn var í hópi fyrstu lögfræðinganna sem útskrifuðust frá Háskóla Íslands sumarið 1912 ásamt 4 öðrum. Eftir það starfaði hann víða, m.a. á Morgunblaðinu 1914-15, sem kennari við Verzlunarskólann en síðar sem hæstaréttarlögmaður í Reykjavík og víðar um árabil. Hann veiktist af lömunarveiki (rétt fyrir 1930?) og var haltur upp frá því. Kona hans var Martha María Indriðadóttir, leikkona, en hún var dóttir Indriða Einarssonar þingmanns Vestmannaeyja 1891. Þau áttu börnin; Páll Einar Kalman, f. 14. janúar 1924, d. 23. maí 1996, sem fór utan 18 ára til siglinga og sneri aldrei aftur heim, Helga Kalman, Hildur Kalman, f. 29. júlí 1916, d. 6. febrúar 1974, leikkona og Björn Kalman, læknir í Svíþjóð.

Björn flutti til Vestmannaeyja 1930 og vann þar við ýmis störf, m.a. sem kokkur á fiskibátum. Hann bjó að Heimagötu 4, eða Tungu samkvæmt íbúaskrá 1934, en á þessum árum voru þar leigð herbergi til prívatmanna. Því húsi var breytt 1966-67 í gistihús undir nafninu Hótel Berg. Hann var félagi í Taflfélagi Vestmannaeyja og tefldi eitthvað, m.a. í sveitakeppni. Hann fluttist að nýju til Reykjavíkur 1940 þar sem hann átti heima síðan.

Sú tilgáta hefur oft verið nefnd að Björn hafi verið fyrirmyndin að Dr. B. í hinni þekktu sögu Stefans Zweig, Manntafl. Við útgáfu ævisögu Vilhjálms Stefánssonar landkönnuðar 1962, sem út kom eftir andlát Vilhjálms, vaknaði sú hugmynd, því samanburður á frásögn Vilhjálms við frásögn í bók Zweigs, Manntafl er sláandi líkt að mörgu leyti. Ævisögu Stefans Zweigs gefur líka þessari hugmynd byr undir vængi því Zweig mun hafa verið á ferð um Ameríku fyrir fyrri heimsstyrjöld og dvaldi m.a. í Boston (Harvard) ekki mörgum árum á eftir Birni.



Heimildir

  • Afmælisrit Taflfélags Vestmannaeyja 1982
  • Lögfræðingatal 1736-1992. Iðunn Reykjavík 1993
  • Lesbók Mbl. 24. desember 1942 (viðtal við Björn)
  • Söguleg skák e. Jón Ólafsson hrl., Samvinnan, 1. ágúst 1976, bls. 14 o.áfr.
  • Ættarnöfn á Íslandi, Árnastofnun, heimasíða
  • Heimasíða KR (stofnun)
  • Samantekt Karl Gauti Hjaltason